Kæru KDE-þýðendur og Vinixarar. Er þetta ekki eitthvað í áttina við það sem við vorum að ræða um daginn? Plús aðeins meira. Eric Raymond og Alan Cox! Ég ætla að skrá mig. Böðvar Bodvar Bjorgvinsson wrote: > > -----Original Message----- > From: Helga Jónsdóttir > Sent: 6. febrúar 2001 13:35 > To: Bodvar Bjorgvinsson > Subject: FW: Linux - ráðstefna og sýning 15. mars 2001 > > Sæll Böðvar, > > Þar sem þú hefur verið að pæla í linux, þá datt mér í hug að þú gætir haft > gaman af þessu. > > Með bestu kveðju, > Helga > > Ágætu félagsmenn og aðrir á tölvupóstlistum Skýrslutæknifélagsins. > > Fimmtudaginn 15. mars nk. stendur félagið fyrir ráðstefnu og sýningu um > Linux. Ráðstefnan verður haldin í Tónlistarhúsi Kópavogs (Salnum) en þar er > einnig góð aðstaða fyrir sýningu. > > Þeir Eric Raymond og Alan Cox verða með erindi á ráðstefnunni en áhugamenn > um Linux og frjálsan hugbúnað (open source) vita að þeir tveir eru meðal > þekktustu manna í heiminum á þessu sviði. > > Undirbúningsnefndin hefur áhuga á að fá ábendingar um fyrirlestra eða annað > sem tengst gæti ráðstefnunni og einfaldast er að koma þeim á framfæri með > því að svara þessum boðum og helst sem fyrst. > > Einnig viljum við vekja athygli á sýningunni sem verður í tengslum við > ráðstefnuna > og gefum þeim sem hafa áhuga hér með tækifæri til að taka þátt í henni að > uppfylltum skilyrðum. > > Sú hugmynd hefur einnig komið fram að vera með sérstakt svæði fyrir plaköt > eða "posters". Þar geta áhugasamir félagsmenn komið á framfæri, á einfaldan > og óformlegan hátt, ýmsum fróðleik tengdum Linux eða sýnt ráðstefnugestum > hvernig Linux hefur verið notað við lausn verkefna á ýmsum sérsviðum. > > Við reiknum með að þetta verði áhugaverð og fjölmenn ráðstefna og því er > e.t.v. > öruggast að skrá sig strax, t.d. með því að svara þessum boðum :) > > Frekari upplýsingar verða birtar á: > http://www.sky.is/Radstefnur/R15-03-01.htm > > F.h. undirbúningsnefndar, > Hólmfríður Arnardóttir, > Framkvæmdastjóri Skýrslutæknifélags Íslands -- ___ / / \ // _/ Bodvar Bjorgvinsson, | __/ __ _\ __ __ Document Control Supervisor | \ / \ / \ \ / __\ / Tel. +354-431-2952 _/ ___/ \__/ \__/ \/ \__/ | GSM: +354-899-1552 =============================== e-mail: [EMAIL PROTECTED]
