Já ég veit að þetta er bannað, en ég tek þá bara við þeim skömmum !

Hjá Marel var hönnuð tölva sem fékk nafnið M3000.
Það var markmið að tölvan yrði með grafískum litaskjá og gæti annað þeim
rauntímakröfum sem gerðar eru til framleiðslutækja Marel (hraði nákvæmni).
Valin var PowerPC örgjörvi frá Motorola (var 821 er nú 823).
Tengimöguleikar við tölvuna eru : Serial/Ethernet/CAN (CAN samskiptalag sem
er afar hentugt í iðnaðarumhverfi)
Stýrikerfi er pSOS sem er rauntímastýrikerfi með kosti og galla.
Gluggakerfið var hannað hjá Marel, svo og annar hugbúnaður sem tölvan
keyrir.


Mikil vinna hefur legið að baki þessarar tölvu og mörg ljón hafa verið í
veginum, en yfir 1000 slíkar eru komnar í umferð.

Síðasta haust var Linux sett upp á tölvunni og með smá tilfæringum og
breytingum keyrði hún.
Þetta verkefni er nú orðið föðurlaust því sá sem þetta verk vann er nú
horfinn til annars fyrirtækis.
Meðal þeirra fjölmörgu verka sem eftir er að gera er til að M3000 fari
héðan úr húsi með Linux sem stýrikerfi
(ef það þá reynist nægjanlega góður kostur) eru :
Skipta út scheduler'num (til að rauntímakröfum verði betur náð)
Koma upp flash file kerfi
Skrifa búnka af driverum
Finna og velja skjákerfi og skjástýringar (X er ekki líklegt til að komast
í lokakeppnina)
Aðlaga núverandi hugbúnað að breyttu stýrikerfi
+
+
+

Það vantar sem sagt GÓÐAN forritara sem hefur áhuga SKEMMTILEGRI (OK
afstætt) forritun sem reynir á vélbúnaðarpælingar.

Ef þetta vekur áhuga þá hvet ég ykkur til að melda ykkur og spyrja þá
ófeimnir líka.

Forvitnir mega ófeimnir leita eftir frekari upplýsingum.

Kveðja

Haddi

======================================
Haraldur Baldursson
Marel hf.
Tækjahugbúnaðarsvið
Höfðabakki 9
IS-112 Reykjavik
Dir. 563 8145
[EMAIL PROTECTED]
======================================




Reply via email to