[Talk-is] Samstarf við Strætó bs.

2014-08-25 Thread Svavar Kjarrval
Afrit: Daði

Hæ.

Daða hjá Strætó bs. langar að athuga með að nota OSM fyrir strætó á
Íslandi. Væntanlega er um að ræða nýtingu á OSM eftir því sem kostur er
og reynt að skipta út þjónustum sem nota ófrjáls gögn fyrir aðrar sem
nýta OSM gögn.

Hver hér hafa áhuga?

Með kveðju,
Svavar Kjarrval


signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
___
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


Re: [Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi

2014-08-25 Thread Svavar Kjarrval
Hæ.

Skoðaði highway=footway á wiki síðu OSM og þar er ekki gefið að það
skuli túlka sjálfgefið sem bicycle=no heldur gefið frjálst á hvorn
veginn það er túlkað af hálfu algrímanna. Ef við tökum bicycle=yes af
yrði það líklega mismunandi milli algrímanna hvort þeir beini hjólafólki
eftir stígum eða götum.

Einhverjar umræður hafa verið í gangi á aðalpóstlista OSM um sjálfgefin
gildi á tilteknum svæðum þar sem hægt væri að setja inn sjálfgefnar
stillingar í samræmi við lög og reglur sem gilda á hverju svæði, svo
ekki þurfi að merkja allt innan svæðisins með einhverju sem gildir alls
staðar. Veit samt ekki hvort eða hvenær slíkar sjálfgefnar
skilgreiningar yrðu innleiddar.

Persónulega hefði ég talið það eðlileg virkni fyrir hjólaumferð í
rútunaralgrímum að beina fólki á stíga ef það er styttri og/eða öruggari
leið, sérstaklega ef um er að ræða óvant hjólafólk. Fólkið sem telur sig
ráða við að hjóla á götum getur auðvitað hunsað tillögu algrímanna um að
nota stíga ef aðstæður leyfa, eða fólkið sem semur algrímana geri ráð
fyrir þessu og lagi algrímana að þessum veruleika. Ef ég ætlaði að fara
stystu leiðina fyrir hjól myndi ég eðlilega vilja fá leiðarlýsingu þar
sem ég get notfært mér alla stíga sem ég má hjóla á.

Ef bicycle=yes yrði tekið af í Fellahverfinu, rútunaralgrímurinn myndi
túlka skortinn sem bicycle=no og ég myndi óska eftir hjólaleið frá
Völvufelli 11 og til Drafnarfells 2, þá myndi hann mæla með því að ég
myndi hjóla eftir götunni út Völvufellið og síðan hringinn í kringum
húsin meðfram Suðurfelli og Norðurfelli áður en ég kemst á Drafnarfell.
Með bicycle=yes myndi algrímurinn mæla með því að ég myndi hjóla stuttan
stíg norður að Drafnarfelli 2.
Með bicycle=yes:
http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.824661,64.1007793&end=-21.8247791,64.1012104&pref=Bicycle&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false
Án bicycle=yes:
http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.824661,64.1007793&end=-21.8247791,64.1012104&pref=Fastest&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false

Síðan eru auðvitað líklegri tilvik eins og ef einhver biður um hjólaleið
milli Seljahverfisins í Reykjavík og yfir í Lindahverfið eða Salahverfið
í Kópavogi (ekki endilega milli heimilisfanga sem eru rétt hjá hvort
öðru). Fyrri áhyggjurnar í þessari umræðu voru einnig að OpenCycleMap
birti of mikið af bláum leiðum sem eiga að vera sérstakar hjólaleiðir.
En ef merkja á stíga með bicycle=yes á stígum sem eru ekki meðfram götum
mun birtast hellingur af bláum blettum á því korti ef reynt er að halda
í rútunina. Ef úrval slíkra stíga er of strangt mun fólk undrast af
hverju tilteknir stígar á kortinu urðu ekki fyrir valinu þegar þeir eru
augljóslega hentugri en sú leið sem var valin. Þetta er nokkurn veginn
það sem fólk er að lenda í þegar stígar eru ekki tengdir almennilega.

Tæknilega séð eigum við að merkja stíga sem eru fyrir ótilgreindar
tegundir óvélknúinnar umferðar sem highway=path. Gætum íhugað að breyta
highway=footway í highway=path nema á þeim stöðum þar sem skilgreint er
sérstaklega að stígurinn sé fyrir ákveðna umferð eingöngu (eins og
sérstaka hjólastíga). Þá getum við sleppt bicycle=yes tagginu þar sem
það er sjálfgefið og liturinn fyrir það er ekki æpandi á OpenCycleMap.

Varðandi úrlausn myndi ég ekki mæla með því að stígar meðfram götum yrðu
teknir út enda myndi það brjóta nokkuð mikið í bága við ‚don't tag for
the renderer‘ regluna (sem á einnig við um rútanir). Það ferli að velja
sérstaklega hvaða leiðir eru viðeigandi og merkja þær (þar með talið
koma sér saman um almenn viðmið og viðhalda merkingum) getur alveg eins
verið jafn fyrirhafnarmikið og setja inn þveranir þar sem á við. Auk
þess væri það nokkuð selective tagging að fara að stunda það að velja
leiðir með þessum hætti og myndi vera langt frá því að leysa úr
rútunarvandanum fyrir gangandi vegfarendur (jafnvel með notkun á
sidewalk tagginu). Ef gögnin eru rétt og rútunaralgrímar eru að mæla með
einhverju röngu, þá á að leysa vandamálið í algrímunum sjálfum en ekki
með því að rengja rétt gögn. Sama gildir ef eitthvað kemur ljótt út á
korti. OpenStreetMap verkefnið gengur aðallega út á gögnin en ekki
hvernig þau eru túlkuð nema af afar litlu leiti.

Mín tillaga undir þessum kringumstæðum er að vinna í að bæta þveranir og
taka umræðuna varðandi að breyta highway=footway í highway=path. Það
tekur auðvitað einhverja vinnu í upphafi að framkvæma þetta en eitthvað
sem mun þurfa að gera að endingu.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

On 21/08/14 10:10, Arni Davidsson wrote:
> Hæ
>
> Já Bristol á Englandi.
>
> Mér sýnist þetta snúast um magn af gögnum. Það eru lítil gögn í
> Bristol og þeir fáu stígar sem eru teiknaðir eru einfaldlega tengdir
> við götu (og gert ráð fyrir gangstéttum við þær) og svo er rútað eftir
> götunni fyrir gangandi.
>
> Stígurinn í þessu tilviki er ekki með bicycle=yes og því ættu hjól að
> fara eftir götu skv. þessu:
>
> Rútað fyrir hjól
> http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.583334,51.466187&end=-2.583152,51.46466&pref=Bicycle&lang=d