Re: [Talk-is] Samvinna með Sjálfbjörg - vantar sjálfboðaliða
Vegna óveðursins verður POI söfnuninni frestað þar til 17. nóvember, gefið að það sé göngufært þá. - Svavar Kjarrval On 29/10/12 22:07, Svavar Kjarrval wrote: > Hæ. > > Ég ræddi við fólkið í Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra, um daginn og > fékk samþykki þeirra til að redda upplýsingum um POIs í þeirra nafni. > Þetta er ekki formlegt samstarf milli OSM og þeirra. En þar sem söfnunin > gagnast OSM sérstaklega, þá datt mér í hug að redda sjálfboðaliðum > héðan. Söfnunin er alfarið á mína ábyrgð og þeirra sem vilja deila henni > með mér. Samkomulagið snýst eingöngu um að geta sagt að söfnunin sé á > vegum Sjálfsbjargar og síðan fæ ég netfang til afnota hjá þeim til að > senda út tölvupósta í tengslum við hana. Það er auðveldara að fá > upplýsingar ef hægt er að tengja þekkt samtök við slíkar beiðnir. Síðan > er auðveldara að kynna söfnunina sem hjálparverkefni fyrir fatlaða > heldur en söfnun gagna fyrir OSM. > > Téð verkefni snýst um það að redda POIs og upplýsingum um þá fyrir > OpenStreetMap og þær upplýsingar munu í framhaldinu rata inn á > Wheelmap.org. Notendur Wheelmap, sem eru að mestu hreyfihamlaðir > einstaklinga, geta þá á auðveldari hátt en nú merkt hjólastólaaðgengi > hjá fyrirtækjum. Þær upplýsingar rata síðan inn á OSM grunninn þar sem > gagnaskiptin eru tvíátta. Ef staðurinn er ekki inn á Wheelmap þarf > viðkomandi einstaklingur að setja hann inn sjálfur en það getur verið > nokkuð erfitt fyrir hreyfihamlaðan einstakling. Hann gæti þá frekar > valið að sleppa því að setja inn þær upplýsingar ef hann getur ekki gert > það án mikils erfiðis. > > Fyrsta skrefið væri að gera nokkurn veginn það sem ég gerði í > Hafnarfirði, s.s. að ganga um með síma og taka myndir af upplýsingum. > Myndirnar eru taggaðar með GPS staðsetningu svo augljóst er hvar þær > voru teknar. Með þær að vopni er hægt að setja inn POIs á OSM ásamt þeim > upplýsingum sem eru utan á byggingunum. Prufusvæðið fyrir þetta ákveðna > verkefni er Laugavegurinn frá Hlemmi og að Lækjargötu; Þá þarf ég > sjálfboðaliða til að taka myndir hinu megin við götuna. Mig langar ekki > að vera stöðugt á ferðinni yfir götuna og því þætti mér betra ef einhver > annar væri með í þessu. > > Eftir þessa upplýsingaöflun reyni ég að púsla þessum upplýsingum saman > og setja þau öll inn á réttan stað í OSM ásamt öðrum upplýsingum sem > náðust myndir af. Þá kemur að hluta Sjálfsbjargar en ég fæ afnot af > netfangi undir þeirra léni til að senda út tölvupósta til allra þessara > fyrirtækja (þar sem netfang liggur fyrir) og biðja þau um að staðfesta > upplýsingarnar og bæta við þeim upplýsingum sem á vantar. Ef engin > rafræn leið er í boði fá þau fyrirtæki heimsókn frá okkur til að gera > þetta á pappír. > > Þriðji parturinn, eftir að allt hitt er búið, eða að mestu, er að taka > létta ferð um svæðið og merkja þá staði með rauðu sem augljósast er að > vantar aðgengið. Þá er svæðið búið og hægt að fara yfir á það næsta. > > Hver vill aðstoða mig með þetta? Mig langar að stefna á að hefja > ljósmyndunarpartinn næsta laugardag eða sunnudag. Áætla lauslega að > ljósmyndunarhlutinn gæti tekið um 2 klst. ef ég fæ einn sjálfboðaliða. > Hver hefur tíma þá til að hjálpa mér? > > Með kveðju, > Svavar Kjarrval signature.asc Description: OpenPGP digital signature ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
[Talk-is] LUKR Ljósastaurar (data import)
Hæ (enn og aftur). Tók frumkvæði og vann aðeins með LUKR gögnin sem við fengum aukalega frá Reykjavík; Breytti gögnunum úr .shp yfir í .osm (nema stofnanir og miðlínur stíga) og skoðaði þau aðeins (afrakstur á http://osm.is/gogn/ZZ-Umbreytt/Reykjav%C3%ADk/). Þá tók ég eftir að skráin með ljósastaurum er ekki bara með ljósastaurum í Reykjavík, heldur allt höfuðborgarsvæðið (fyrir utan mesta hluta Garðabæjar og Mosfellsbæjar, og nokkur hverfi í Kópavogi). Þá ákvað ég að endurnýta https://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/LUKR til að fjalla um nýju gögnin. Ég hef áhuga á að setja inn ljósastauragögnin sem fyrst af þeirri ástæðu að gögnin eru líklegast sett inn út frá loftmyndum sem eru nákvæmari en gervihnattamyndirnar sem BING útvegar af svæðum utan Reykjavík. Þá er hægt að nota t.d. ljósastaurana sem mælikvarða til að reikna út gróft offset á gervihnattamyndunum. Stikkprufur fyrir Reykjavík benda til þess að gögnin séu í nokkuð góðu samræmi við loftmyndirnar úr Reykjavík sem eru þarna þá þegar. Ljósastauragögnin innihalda 35.293 nóður en núna í OSM eru 175 highway=street_lamp nóður á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt history á þessum gögnin eru flestar nóðurnar settar inn af Mister Kanister og hinar eru frá mér. Til að einfalda import hef ég spurt Mister Kanister hvort ég megi eyða nóðunum hans í stað þess að merge-a þær handvirkt. Ljósastauranóðurnar úr LUKR skiptast niður á sveitarfélög með þessum hætti (samkvæmt _SVF_ lyklinum): Hefur ekki þennan lykil = 296 = Reykjavík = 26.529 1000 = Kópavogur = 2.685 1100 = Seltjarnarnes = 823 1300 = Garðabær = 340 1400 = Hafnarfjörður = 4.070 1603 = Álftanes = 499 1604 = Mosfellsbær = 51 Einnig hef ég skoðað lyklana og sé engan sem hægt er að þýða yfir í gagnlegt tag fyrir utan _FLOKKUR sem er merking LUKR fyrir ljósastaur (eða ljósastólpa eins og þeir kalla þetta). Við importið verður öllum lyklum eytt *nema* þeim lyklum sem samfélagið vill halda til haga (skv. import guidelines á að gera þetta), en þeir fá þá forskeytið ,lukr:'. Að lokum verður highway=street_lamp bætt við nóðurnar. Ekkert einkvæmt númer fylgir nóðunum svo að uppfærslur verða að fara fram á þann hátt að láta staðsetninguna auðkenna hverja nóðu. Fyrir importið óska ég eftir að fá að komast í OSM aðganginn sem LUKR stígagögnin voru sett inn frá, svo ég þurfi ekki að stofna annan fyrir þetta import og önnur LUKR import í framtíðinni. Með kveðju, Svavar Kjarrval Fylgiefni: Listi yfir lykla í ljósastauraskjalinu og gildin á þeim (dró saman sum gildin svo tölvupósturinn yrði ekki of stór): _AR_UPPL_=0 _AR_UPPL_= Ýmis ár frá 1978 til 2008 _BREYTANDI_= _BREYTANDI_=rj _DAGS_BREYT_= _DAGS_BREYT_= Ýmsar dagsetningar frá 2001/04/02 til 2011/11/03 _DAGS_INN_= Ýmsar dagsetningar frá 1994/01/18 til 2011/09/28 _DAGS_LEIDR_= _DAGS_LEIDR_= Ýmsar dagsetningar frá 2008/04/02 til 2011/11/03 _DAGS_UPPF_= _DAGS_UPPR_= _FLOKKUR_=455 _GAGNA_EIGN_= _GAGNA_EIGN_=OR _GAGNA_EIGN_=Orkuveita Reykjavíkur _HEIMILD_= _HEIMILD_=Veita_43001 _HEIMILD_=Veita_43006 _HEIMILD_=Áætlað 2009 - Dreifing _NAFN_G_= _NAFN_G_=LUKOR _NAFN_G_=Veita_43001 _NAKV_= 0.00 _NAKV_= 0.25 _NAKV_= 0.30 _NAKV_= 0.35 _NAKV_= 0.45 _NAKV_= 1.00 _NAKV_XY_= 0. _NOTANDI_= _NOTANDI_=LUK_GRUNNUR _NOTANDI_=bv245 _NOTANDI_=rj _NOTANDI_=rj+ _SVF_= _SVF_= _SVF_=1000 _SVF_=1100 _SVF_=1300 _SVF_=1400 _SVF_=1603 _SVF_=1604 _UPPR_=1 _UPPR_=2 _UPPR_=3 _UPPR_=4 _UPPR_=5 _UPPR_=8 _VIDMIDUN_P_=0 _VIDMIDUN_P_=92 _VINNSLA_F_=0 _VINNSLA_F_=1 _VINNSLA_F_=4 _VINNSLA_F_=5 _Z_= Mörg gildi frá 0. til 122.5780, 12.534 nóður í því fyrrnefnda _d_FLOKKUR_=Ljósastólpi _d_SVF_= _d_SVF_=Bessastaðahreppur _d_SVF_=Garðabær _d_SVF_=Hafnarfjörður _d_SVF_=Kópavogur _d_SVF_=Mosfellsbær _d_SVF_=Reykjavík _d_SVF_=Seltjarnarnes _d_UPPR_=Borðhnitað _d_UPPR_=Hannað _d_UPPR_=Landmælt _d_UPPR_=Myndmælt _d_UPPR_=Riss _d_UPPR_=Skannað / Vektrað _d_VIDMIDUN_= _d_VINNSLA__= _d_VINNSLA__=Hönnunargögn _d_VINNSLA__=Landmæling _d_VINNSLA__=Skjáhnitun/Borðhnitun signature.asc Description: OpenPGP digital signature ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is