Sæll
Þetta er góð hugmynd. Við erum með skráð félag sem hefur ekki haldið aðalfund í
áratug held ég, tilvalið að gera þetta í samfloti?
Þurfum að bóka aðalfund amk bráðlega. Framboð velkomin!
16. desember 2023 kl. 15:32, skrifaði l33t...@gmail.com
(mailto:l33t...@gmail.com):
Hæ hæ gott fólkHvenær er næsti hittingur hjá okkur?Ættum við að kannski halda
þorrablót núna eftir jólatörnina saman og bjóða öllu OSM samfélaginu á íslandi
saman, við gætum jafnvel sett upp opið boð fyrir erlenda OSM gesti til að koma
í heimsókn, t.d. frá Skandinavíu og frá öðrum stóðum.Þetta gæti orðið árlegur
viðburður.Spurningin hvaða form við setjum á þetta, fer eftir áhuga, og svo
hvaða þjónusta er í boði. Veggspjalda opnun gæti laðað að nokkra spennandi
gesti. Þau sem vilja setja upp veggspjöld með einhverju áhugaverðu sem þau hafa
verið að skoða eða gera. Þá er hægt að kalla stimpla þetta sem akademískt
symposium* og það getur gefið akafemíska punkta fyrir prófessora og starfslið í
háskólum að setja veggspjald upp á formlegu symposium. Það myndi þá vera í c.a.
hálftíma fyrir mat, og svo eftir mat væru svo frjálsir umræðuhópar yfir drykk.
Bara einsog gerist náttúrulega á svona hittingum.Þó við séum fimm (að meðtöldum
mökum) og með eitt veggspjald sem ég get útvegað, þá er þetta success.En ég vil
fá allavegana tvö aðra sjálboðaliða til að mynda framkvæmdastjòrn fyrir
viðburðinn annars er þetta bara kaffihittingur, sem er í góðu lagi líka.Hvernig
er stemmning fyrir svona viðburði? Það væri gaman að hittast.Það væri líka hægt
að hugsa þetta með orðum hætti. En þetta er innlegg til að opna umræðu.Með
bestu kveðjumKári Gunnarsson landfræðingur og einn af þeim sem sett hafa inn
breytingar og lagfæringar á OSM á Íslandi.*symposium/sĭm-pō′zē-əm/Nafnorð1. A
meeting or conference for discussion of a topic, especially one in which the
participants form an audience and make presentations.2. A collection of
writings on a particular topic, as in a magazine.3. A convivial meeting for
drinking, music, and intellectual discussion among the ancient Greeks.Heimild:
The American Heritage Dictionary
___
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is