Það sem mér finnst athyglisvert með gögnin frá t.d. Bristol er að routing 
virkar þrátt fyrir að hvorki gangstéttir né þveranir séu skráðar. Hversvegna 
virkar það þar en ekki hjá okkur? Erum við að gera málið alltof flókið? Er hægt 
að skýra þennan mun?

Kveðja
Árni Davíðsson

> On 15.8.2014, at 22:11, Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is> wrote:
> 
> Hæ.
> 
> Gallinn við stígagögnin frá Reykjavíkurborg er að þau eru frekar teiknuð upp 
> á útlitið en routing. Fyrir okkur var þetta auðvitað ekki ákjósanlegasta 
> staðan. Við fengum hins vegar nokkuð tæmandi safn yfir stíga, jafnvel stíga 
> sem við myndum líklegast ekki fá af loftmyndunum einum saman. Hvað varðar 
> routing gæti þetta verið bjarnargreiði en nokkuð góður greiði þegar kemur að 
> því að vita hvar stígar eru og hvar þeir liggja. Með Laugaveginn tek ég þetta 
> algerlega á mig, sérstaklega þar sem ég á heima þar rétt hjá og hefði 
> auðvitað átt að hafa klárað þetta þar fyrir löngu.
> 
> Okkar vantar smá átak til þess að skrá betur gangbrautir og aðrar þveranir 
> yfir götur. Tók sjálfur einhver þannig svæði á sínum tíma en hef því miður 
> fært áhersluna annað innan OSM. Hef samt tekið nokkuð margar GPS taggaðar 
> ljósmyndir af slíkum þverunum í einhverjum gönguferðanna sem ég hef farið. Ef 
> einhver hefur áhuga á að skrá þetta í massavís, þá get ég tekið þær myndir 
> saman og sent viðkomandi. Margar þverananna sem myndir eru af gætu þó verið 
> augljósar út frá loftmyndum.
> 
> Hvaða svæði finnst ykkur að ættu að vera í forgangi þegar bæta á við þessum 
> tengingum?
> 
> Með kveðju,
> Svavar Kjarrval
> 
>> On 11/08/14 16:26, Arni Davidsson wrote:
>> Sæl
>> 
>> Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega á íslensku.
>> 
>> Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir gangandi og 
>> hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open street map. Ástæðan er að hluta 
>> til innfærsla á gögnum yfir stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum 
>> virðast stígar oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar 
>> leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki tengdir. Það er 
>> fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að tengja stígana. Sjá t.d. það sem 
>> gerist hér að neðan í ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap 
>> og í borgarvefsjá:
>> 
>> http://is.ridethecity.com/#3655489
>> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
>> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
>> 
>> Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki verið hálfgerður 
>> bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en spurningin er hvernig á að laga 
>> þetta? Á bara að hella sér í að tengja stíga við götur og yfir götur þar sem 
>> um þverun er að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af þverunum og 
>> meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi koma ekki fram í 
>> Openstreetmap.
>> 
>> Einhverjar snjalla hugmyndir?
>> 
>> kveðja
>> Árni Davíðsson
>> 
>> 
>> 
>> -- 
>> Árni Davíðsson
>> arni...@gmail.com
>> 
>> 
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is@openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is@openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to