Re: [Talk-is] Tenging gatna við póstnúmeraskrá

2012-11-22 Thread Svavar Kjarrval
Kerfið styður núna að tengja við byggingar/hús skráð sem 'way'. Þetta á
sérstaklega við utan þéttbýlis.

Miðað er við að vegurinn sé skráður sem 'building' og hafi
'addr:housename' lykil. Ef númer færslunnar í götuskrá (skráð í
götuskrá:id) passar við 'addr:housename' nemur vefsíðan tenginguna þar á
milli. Einnig nemur póstnúmerascriptið tenginguna og mælir með
viðeigandi breytingum í .osc skrá sem ég (eða einhver annar) þarf að
setja handvirkt inn.

- Svavar Kjarrval

On 20/11/12 20:07, Svavar Kjarrval wrote:
> Hæ.
>
> Setti upp smá HTML5 síðu svo fólk geti séð stöðuna á tengingu gatna
> við gatnaskrá Íslandspósts. Þá er hægt að nota hana til að finna götur
> sem á eftir að tengja.
>
> http://osm.is/gotuskra/
>
> Í þessum tölum eru eingöngu talin relation þar sem nafn og götuskrá:id
> passa saman. Ef þið sjáið að götur eru ekki merktar tengdar þrátt
> fyrir að götuskrá:id hafi verið til staðar inn á OSM grunninum í svona
> 30 mínútur, þá er líklegast um mismatch að ræða. Ef skráningin í
> götuskránni sjálfri er augljóslega röng skal tilkynna Íslandspósti um
> það í stað þess að setja rangt gildi á ,name' lykilinn fyrir
> viðkomandi relation. Ef Íslandspóstur leiðréttir þetta (án þess að
> setja inn aðra færslu með öðru færslunúmeri) mun þetta koma inn
> sjálfkrafa.
>
> Til að setja inn relation:
> Velja alla vegi sem mynda viðkomandi götu og setja þá í street
> relation eða associatedStreet relation (type lykillinn). Veljið hið
> fyrrnefnda ef engin hús tilheyra götunni en hið síðarnefnda ef þið
> vitið til þess að það séu hús þar. Ef það er ekki augljóst við hvaða
> götu ákveðið hús tengist er betra að láta það vera. Þið ráðið hvort
> þið tengið hús eða látið nægja að setja eingöngu göturnar sjálfar inn.
>
> https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features/House_numbers/Karlsruhe_Schema
> er það sem farið er eftir. Semi-sjálfvirk scripta getur séð um að
> fylla út lyklana street:name, street:postcode og alt_name ef name og
> götuskrá:id lyklarnir eru rétt útfylltir.
>
> Ef þið hafið frekari spurningar um þetta megið þið hafa samband beint
> við mig á sva...@kjarrval.is eða hér á póstlistanum.
>
> - Svavar Kjarrval



signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
___
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


[Talk-is] Tenging gatna við póstnúmeraskrá

2012-11-20 Thread Svavar Kjarrval
Hæ.

Setti upp smá HTML5 síðu svo fólk geti séð stöðuna á tengingu gatna við
gatnaskrá Íslandspósts. Þá er hægt að nota hana til að finna götur sem á
eftir að tengja.

http://osm.is/gotuskra/

Í þessum tölum eru eingöngu talin relation þar sem nafn og götuskrá:id
passa saman. Ef þið sjáið að götur eru ekki merktar tengdar þrátt fyrir
að götuskrá:id hafi verið til staðar inn á OSM grunninum í svona 30
mínútur, þá er líklegast um mismatch að ræða. Ef skráningin í
götuskránni sjálfri er augljóslega röng skal tilkynna Íslandspósti um
það í stað þess að setja rangt gildi á ,name' lykilinn fyrir viðkomandi
relation. Ef Íslandspóstur leiðréttir þetta (án þess að setja inn aðra
færslu með öðru færslunúmeri) mun þetta koma inn sjálfkrafa.

Til að setja inn relation:
Velja alla vegi sem mynda viðkomandi götu og setja þá í street relation
eða associatedStreet relation (type lykillinn). Veljið hið fyrrnefnda ef
engin hús tilheyra götunni en hið síðarnefnda ef þið vitið til þess að
það séu hús þar. Ef það er ekki augljóst við hvaða götu ákveðið hús
tengist er betra að láta það vera. Þið ráðið hvort þið tengið hús eða
látið nægja að setja eingöngu göturnar sjálfar inn.

https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features/House_numbers/Karlsruhe_Schema
er það sem farið er eftir. Semi-sjálfvirk scripta getur séð um að fylla
út lyklana street:name, street:postcode og alt_name ef name og
götuskrá:id lyklarnir eru rétt útfylltir.

Ef þið hafið frekari spurningar um þetta megið þið hafa samband beint
við mig á sva...@kjarrval.is eða hér á póstlistanum.

- Svavar Kjarrval


signature.asc
Description: OpenPGP digital signature
___
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is