Ég er með Garmin Virb Elite, action cam með Garmin GPS innbyggðu (munurinn á Virb og Virb Elite er GPSið). Það gefur mér GPX skrá (ef ég er að nota video) eða GPS-taggaðar ljósmyndir (ef ekki video).

Það er hægt að tengja það við gemsann en eiginlega bara í þá átt að síminn stjórni myndavélinni. Mér gefst best að fara nógu hægt bara, 15 km á hjólinu er að skila fínum punktum sýnist mér.

Það er til listi yfir sér GPS-tæki á http://wiki.openstreetmap.org/wiki/GPS_device_reviews

Þann 10.7.2016 23:12, skrifaði Morten Lange:
Sæl


Hvernig er best að auka nákvæmni þegar maður fer eftir slóða og stiga sem maður 
vill bæta inn á OSM, gefið að maður ætlar ekki að gerast atvinnumaður í þessu 
og ætlar að nota hagkvæm tæki ?


Mér dettur í hug :

* Biða eftir "fix"
* Færa sér hægt eftir leiðinni og athuga hvað tækið segir um nákvæmni ef 
sérstaklega mikilvægt er að hafa punktana nákvæma, eða maður er milli húsa, í 
þröngum dal eða undir tré.

* Fá sér tæki sem maður getur fest efst á bakpoka eða álíka, og er nákvæmri en GPS í 
síma. Sér GPS tæki eða "hjálpartæki" fyrir síma/spjaldtölvu/tölvu



Hefur einhver hér reynslu af blátannatengd aukatæki / viðtæki ?


Til dæmis þessi :
Portable GPS Receiver GPS Comparison

http://www.mypilotstore.com/mypilotstore/Aviation-GPS/Bluetooth-GPS.asp
Portable GPS Receiver GPS Comparison
Compare Leading Portable GPS Bluetooth Puck Receiver Units from Dual, Bad Elf, 
and Garmin.
View on www.mypilotstore.com Preview by Yahoo


_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to