Núna á mánudaginn eftir helgi, 30. maí 2016 - heldur Hliðskjálf -
móðurfélag OpenStreetMap á Íslandi, aðalfund sinn í Hamraborg, Kópavogi.
Fundarsalurinn er á neðstu hæð Bókasafns Kópavogs. Fyrir utan húsið
stoppa leiðir 1, 2, 4, 28 og 35 og ágætis hjólaleiðir eru þangað.
Bílastæði eru í fríu bílastæðahúsi við Molann, á plani milli Bókasafns
og Kópavogskirkju og upp að kirkjunni sjálfri.
Sjá einnig á fundarboðinu á vef okkar:
http://www.hlidskjalf.is/2016/05/22/adalfundur-hlidskjalfar-30-mai-2016/
Öllum er frjálst að koma og taka þátt í fundi og starfi.
kveðja
Jóhannes formaður
_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is