Frábært !

Ég er búinn að bæta inn stubba í norð-austurhorni Kópavogs, nálægt 
Reykjanesbraut.  Tók sénsin á að gera þetta eftir minni.  Mér sýnist vera lítið 
mál að leiðrétta eftirá. Verður spennandi að sjá hvenær þessar viðbætur detta 
inn á hjólavefsjá.is 

Mér finnst góð hugmynd að halda kynningu á klúbbhúsi Íslenska 
fjallahjólaklúbbsins, að Brekkustíg 2, Rvk, eitthvert fimmtudagskvöld.  Þá munu 
reyndar pottþétt koma upp spurningar varðandi að taka tillit til halla / hækkun 
við útreikninga, og fleira í þeim dúr. 

Skal koma því á framfæri við klúbbinn að svoleiðis kynning væri möguleiki. ( 
Enginn hefur lofað neitt ennþá að vísu )

--
Regards / Kvedja
Morten Lange, Reykjavík


--- On Tue, 24/8/10, Björgvin Ragnarsson <nifgr...@gmail.com> wrote:

> From: Björgvin Ragnarsson <nifgr...@gmail.com>
> Subject: Re: [Talk-is] Hjolavefsja.is flott framtak. Hvernig geta hjólarar 
> aðstoðað ?
> To: "OpenStreetMap in Iceland" <talk-is@openstreetmap.org>
> Date: Tuesday, 24 August, 2010, 23:21
> Sæll Morten og aðrir,
> 
> http://www.hjólavefsjá.is ætti að vera komið í
> lag núna. Endilega
> spurðu ef þú lendir í einhverjum vandræðum. Athugaðu
> að breytingarnar
> koma ekki um leið inn á kortið, ef einhver veit hversu
> ört kortin frá
> CloudMade uppfærast væri gott að vita það.
> 
> Kannski væri það góð hugmynd að hafa smá kennslu á
> OpenStreetMap í
> klúbbhúsi Fjallahjólaklúbbs Íslands, einhver sem
> býður sig fram í það?
> Það væri hægt að byrja á að fara í smá hjólatúr
> og skrásetja með hjálp
> http://walking-papers.org/ og hafa síðan kennslustund
> fyrir framan
> skjávarpann.
> 
> kv.
> 
> Björgvin
> 
> 
> 
> 2010/8/24 Thorir Jonsson <thorir...@gmail.com>:
> > Sæll Morten.
> >
> > Bæði www.hjolavefsja.is og www.hjólavefsjá.is
> sýna Reykjavík hjá mér?
> > Veit ekki hvað er á seiði þar.
> >
> > Varðandi tengingar og hjólastíga sem vantar á
> kortið, þá er auðvelt að
> > bæta þeim inn.  Hjólavefsjá.is notar kortagögn
> frá openstreetmap.org.
> > Þessi gögn eru öllum aðgengileg og auðvelt er að
> breyta þeim og bæta.
> > Fyrst þarf stofna notanda hjá openstreetmap.org.
>  Þegar það er búið er
> > hægt að byrja að breyta kortinu með því að opna
> Potlatch (velja edit
> > ofan við kortið á openstreetmap.org og skrá sig
> inn).
> >
> > Leiðbeiningar fyrir Potlatch er að finna hér:
> > http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Potlatch
> > Lista með öllum algengustu tögunum ásamt
> leiðbeiningum um notkun
> > þeirra finnur þú hér: http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Map_Features
> >
> > Það er svo rétt að taka það fram að Potlatch er
> ekki eina forritið sem
> > hægt er að nota til að breyta og bæta
> openstreetmap.  JOSM er það
> > forrit sem ég held að flest okkar hér á
> póstlistanum noti.  Það er mun
> > öflugra en Potlatch en er erfiðara að læra á og
> engu betra fyrir
> > litlar lagfæringar eins og að bæta tengingar á
> hjólastígum.
> >
> > Þar sem þú nefnir Borgarvefsjá í póstinum
> þínum þá er rétt að taka það
> > fram að við höfum ekki fengið leyfi til að bæta
> gögnum úr
> > Landupplýsingakerfi Reykjavíkur (landafræðigögnin
> sem Borgarvefsjá
> > byggir á) í openstreetmap grunninn.  Það má
> því ekki bæta inn
> > upplýsingum sem fengnar eru af Borgarvefsjá.  Allar
> upplýsingar sem þú
> > getur bætt inn eftir minni og eigin þekkingu eru
> aftur á móti vel
> > þegnar.
> >
> > Bestu kveðjur,
> > Þórir Már
> >
> >
> >
> > 2010/8/24 Morten Lange <morten...@yahoo.com>:
> >> Sælar :-)
> >>
> >>
> >> www.hjolavefsja.is  er flott.  (Reykjavík)
> >> www.hjólavefsjá.is  virkar ekki eins vel :-þ
>   (New York)
> >>
> >>
> >> Það eru fullt af litlum tengingum sem vanta.
> (t.d. við enda Blesugrófar) Hvernig getur maður sem er
> ekki með GPS, en þekkir leiðirnar  ( og kann á
> Borgarvefsjá ofl.  ) aðstoðað ?
> >>
> >> --
> >> Regards / Kvedja
> >> Morten Lange, Reykjavík
> >> ( í varastjórn Landssamtaka hjólreiðamanna )
> >>
> >>
> >>
> >>
> >> _______________________________________________
> >> Talk-is mailing list
> >> Talk-is@openstreetmap.org
> >> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
> >>
> >
> > _______________________________________________
> > Talk-is mailing list
> > Talk-is@openstreetmap.org
> > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
> >
> 
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is@openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
> 


      

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to