Á meðan Routing tólin Gúddera síga taggaða "highway=path" sem hjólaleið þá er það fín skilgreining á milli hjólreiðabrautar og hjólaleiðar í almenna stíga/götu kerfinu. Það hlýtur að vera mikilvægt að setja footway tag á almenna stíga þar sem það á við. Skokkar og göngufólk hljóta að njóta góðs af því.
Ég er frekar sáttur við þessar skilgreiningar á stígum sem fram hafa komið. Væri ekki ráð að búa til Presets fyrir þessar skilgreiningar ásamt wikisíðu með ljósmyndum og guidelines af hvernig ætti að tagga leiðirnar. Nöfn á presetin gæti hljómað svona: (Ég tek það fram að ég er glænýr notandi og þekki ekki virkni presets fullkomnlega) Stígur,malbik Stígur Möl (gæti átt við heiðmörk og fl útivistarsvæði) Hjólreiðabraut Gangstéttir Hjólreiðarein Hjólavísar Persónulega skil ég ekki merkingu orðsins Hjólavísir en það er væntanlega bara orðaforðaskortur hjá mér. Mér dettur í hug "Almenn akbraut" ef að ég túlka þessa skilgreiningu rétt. Er þetta ekki basicly þeir staðir þar sem hjólreiðamenn kjósa eða þurfa að hjóla á götunni? Svona reiðhjólaumferð eins og hefur td. stóraukist við Hafnarfjarðarveginn Ásamt ýmissa tenginga á milli annara hjólaleiða í gegnum íbúðargötur, yfir bílastæði, gatnamót og fl. Er hægt að skilgreina götur sem þegar eru inni sem hjólavísa? Eða eru þetta leiðir sem við ættum að teikna upp á nýtt ? Skiptir það máli þegar það kemur að virkni hjolavefsjáa? það væri ekki vitlaust að finna svo nokkur vel valin aukatögg til að auðvelda áframhaldandi úrvinnslu (td. fyrir hjólavefsjá) Ég veit ekki hvernig þessar vefsjár sem eru að routa hjólaleiðir skilgreina öryggi leiðanna geta tögg eða stöðluð preset hjápað þar ? Það væri kanski hægt að gefa leiðunum einkun eftir hversu hjólavænar þær eru (A leið B leið og C leið?). Aðkoma að gatnamótum, bílaumferð, stígabreidd, útsýni og brekkur geta spilað þarna inní. 2010/8/28 Ævar Arnfjörð Bjarmason<ava...@gmail.com> 2010/8/27 Arni Davidsson <arni...@gmail.com> > > Varðandi merkingar á hjólaleiðum. > Á vefnum:http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways > Ég er sammála merkingu á hjólaleiðum eins og fram kemur í “Suggested rules > for cycleways in Reykjavík” Nær allir stígar og gangstéttir eru blandaðir > stígar og gangstéttir en ekki sérstakar hjólaleiðir hönnuð með umferð > reiðhjóla í huga. > Ég skil því ekki merkingarnar sem eru á :http://www.opencyclemap.org/ þar sem > virðist vera sagt að mjög mikið af stígum séu sérstakir hjólreiðastígar > (bláar brotalínur) ef ég skil það rétt. Þessar merkingar hjá okkur eru í svoldlu rugli, og ég ber örruglega meiri ábyrgð á þessu rugli en margir aðrir. Ég fór einhvertíman í gegnum megnið af þessum vegum á höfuðborgarsvæðinu og endurmerkti þetta eitthvað, en þetta hefur breyst síðan þá. Það má endilega endurhugsa hvernig á að gera þetta, og það hefur verið rætt áður t.d. hér: http://lists.openstreetmap.org/pipermail/talk-is/2008-December/000056.html Ég veit ekki hvort ég er sammála nokkru sem ég færði fram í þeirri umræðu ennþá, en sá punktur var í grunninn (og mikið af höfuðborgarsvæðinu er merkt út frá þessu): 1. Að við merkjum hluti eins og þeir eru "on the ground". Sem er grunngildi OpenStreetMap (sjá "On the ground rule"). 2. Þar að auki, að vegir séu merktir highway=cycleway eftir ákveðnu óljósu huglægu mati. Það er *engin* opinber flokkun fyrir þessa vegi sem er vit í, og ef vegirnir eru merktir sem cycleway sjást þeir á áberandi hátt á kortum eins og OpenCycleMap o.fl. Í staðin fyrir #2 væri algerlega hægt að sleppa þessu huglæga mati og merkja basically allt sem highway=path. Þetta myndi endurspegla lagalega stöðu þessara vega, og forðast þann bias sem kemur óhjákvæmilega inn þegar verið er að merkja hluti huglæga, ég er mun hrifnari að þessari pælingu en ég var þegar við ræddum þetta síðast 2008. Sérstaklega þar sem það hefur komið á daginn að það eru margar mismunandi hugmyndir um hvað ætti að vera cycleway, sjá t.d. fossvoginn v.s. Grafarholtið v.s. Mosfellsbæinn. > Varðandi “Details about cycleways“ tel ég að flokkunin ætti að vera nokkurn > vegin svona: > > Stígar (útivistarstígar), aðskildir frá akbraut, blönduð umferð gangandi (sem > eru í forgangi) og hjólandi. > Venjulega eru þeir ca. 2,5m breiðir en breiddin er samt misjöfn allt niður í > 1,5 m líklega. > Til stóð að leggja 4 m breiða stíga á höfuðborgarsvæðinu og var það gert t.d. > fyrir Blikastaðanes en ekki annar staðar svo ég viti til. Þarf mismunandi > flokka af útivistarstígum eftir breidd? Þarf að merkja varasama staði s.s. > blindbeygjur/blindhorn, holur eða annað? > Merking: Tag:highway=path with Tag:bicycle=yes and Tag:foot=yes Ég held þú þurfir ekki mismunandi flokka eftir breidd, bara width=<breidd í metrum>. Blindbeygjur, horn og annað er um að gera að merkja. Gætir t.d. notað þetta skema: http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Proposed_features/hazard > Gangstéttir, samsíða akbrautum en aðgreind með kantsteini, blönduð umferð > gangandi (sem eru í forgangi) og hjólandi. Á að merkja þær með öðrum hætti en > stíga? Hljómar eins og eitthvað sem er hægt að merkja með auka-taggi, t.d. kantsteinn=yes eða eitthvað þannig. > Hjólreiðabraut, merkt með hjólamerki, aðskilin frá akbraut (eins og > útivistarstígur), aðeins hjólandi umferð (eða a.m.k. umferð hjólandi í > forgangi). Oftast hjólað í gagnstæðar áttir á sömu braut. T.d. Ægissíða. > Merking Tag:highway=cycleway value=track?? and also have > ??Tag:foot=designated ?? and Tag:segregated=yes og líka Tag:surface=paved. Já, eða í "on the ground" stíl: highway=path segregated=yes foot=designated bicycle=designated surface=paved cycleway:width=1m footway:width=2m Eða eitthvað þannig. > Hjólreiðarein, merkt með hjólamerki, sérrein á akbraut fyrir umferð > reiðhjóla, ætluð aðeins hjólandi umferð (eða a.m.k. umferð hjólandi í > forgangi). Hjólað í stefnu með umferð. T.d. Hverfisgata. (Athugið samt að > Hverfisgata er ekki merkt með akreinalínu og er því í raun ekki sérrein í > lagalegum skilningi). > Merking Merking Tag:highway=cycleway value=lane?? and also have > ??Tag:foot=designated ?? and Tag:segregated=yes og líka Tag:surface=paved. Hljómar eins og cycleway=lane, t.d. er þetta merkt þannig á Langholtsveginum:http://www.openstreetmap.org/browse/way/5118949 http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Key:cycleway?uselang=is > Hjólavísar (bike and chevron) á akbraut. Hjólreiðamenn hjóla á akbraut í > aksturstefnu með bílum á þeirra akrein en hjólavísamerki sýna aksturstefnu og > staðsetningu hjólreiðamanna inna akreinar. Geta verið hluti af markaðri > hjólaleið (Local Cycle Network) eins og á Einarsnesi. > Merking Hvernig er hægt að merkja þá??? Ég veit ekki :) > Hjólaleiðir skilgreindar (Cycle network). Á að merkja þær inná að einhverju > leyti. Já, það er spurning að merkja þetta opinbera fantasíu-reiðhjólanet einhvernvegin. En oftast þegar er verið að nota "cycle network" merkir það *einhverja* séraðstöðu fyrir hjólreiðamenn, það er ekki tilfellið í Reykjavík t.d. á Nesveginum, sem er bara venjuleg gata, en er merkt í þetta opinbera hjólanet því einhverjum fannst þurfa einhverja leið út á Seltjarnarnes. > Merking ??? > Local cycle network lcn_ref = “ZZ” or lcn = “yes” Various, including London > Cycle Network > > Hjólaslóðar sem eru hjólaðar t.d. í Heiðmörk og viðar. Á að setja þær inná? > Merking: Tag:highway=track tracktype=* with Tag:bicycle=yes and Tag:foot=yes > > > Hjólabúðir. > Vantar > Kríu í Ármúla 42 > Hjólasprettur Bæjarhrauni 22 > Hjólreiðameistarinn á Nýbýlavegi Endilega bættu þessum við með svipuuð tögg og t.d. Markið, ættir að geta gert það tilturulega nákvæmt upp úr minni útfrá núverandi veganeti, eða eftir GPS. En til samantektar: Ég er basically sammála því sem Christoph Hess var að segja á sínum tíma, að við ættum að sleppa því að merkja hluti sem eru ekki lagalega séð sérhjólabrautir sem highway=cycleway og merkja basically allt sem highway=path. Það er mikið til gert í Þýskalandi þar sem lagastaðan er svipuð, og það er mun einfaldara að kenna fólki að merkja *bara* hluti sem það sér "on the ground" en að vera spá í stóru myndina. Ef við viljum eitthvað sér hjólakort sem sýnir ákveðnar leiðir áberandi er alltaf hægt að gera það út frá gögnunum seinna. _______________________________________________ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is -- Kveðja, Karl Georg
_______________________________________________ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is