2010/12/6 Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is>: > Var að hringja í Fasteignaskrá og vildi forvitnast hvort við gætum fengið > GPS hnit úr staðfangaskrá fyrir allt landið en fékk það svar að það myndi > kosta um 200 þúsund krónur. Þess vegna datt mér í hug hvort við gætum reynt > að fá gögnin ókeypis og án ósanngjarnra skilyrða. Ein leið sem mér datt í > hug væri að biðja formlega um afhendingu gagnanna án endurgjalds (eða gegn > sanngjörnu úrvinnslugjaldi). Ef beiðninni yrði neitað gætum við sent > stjórnsýslukæru í von um að hún yrði samþykkt. Það er engin trygging fyrir > árangri en mér finnst að við ættum allavega að reyna.
Hljómar vel. Ef við myndum borga fyrir þessi gögn í dag (þ.e. þessar 200.000 kr) myndu gögnin vera samhæf OSM skilmálunum. Þ.e. er þetta eingöngu úrvinnslugjald, eða er þetta afnotagjald fyrir gögn háð ákveðnum skilmálum? > Kosturinn yrði sá að við fengjum GPS hnit fyrir (nær) öll hús á landinu sem > gæti sparað okkur mikla vinnu í framtíðinni, gætum áætlað staðsetningu > ómældra gatna (betur) og flýtt fyrir því að fólk noti OSM Garmin kortið > frekar en það keypta. Það væri frábært að fá þessi hnit. Það var svipað import á húsnúmerum í Færeyjum sem hefur hjálpað mikið til. _______________________________________________ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is