Hæ.

Hehe, úps. 104 Reykjavík er eina hverfið sem ég hef ekki sett inn gangbrautir (crossways) svo það er skiljanlegt af hverju leiðarvalsvélin skilur ekki tengingar milli stíga sem eru aðskildir með götu.

LUKR stígarnir voru allir merktir með bicycle=yes svo það er allavega ekki vandamál (nema leiðarvalsvélin skilji það ekki - sem ég efa). Götumerkingin er, svo best ég veit, þannig að hún leiðir af sér bicycle=yes nema hún sé sérstaklega merkt á annan hátt eins og með bicycle=no.

Ef þú sérð stíga þar sem bannað er að hjóla, þá máttu endilega breyta bicycle=yes yfir í bicycle=no. Upp á nákvæmnina borgar sig að passa að merkingin nái eingöngu yfir þann hluta stígana þar sem bannað er að hjóla.

- Svavar Kjarrval

On 09/05/11 16:15, Morten Lange wrote:
Hæ Svavar,

Takk fyrir svar.
Dæmi eru meðfram Suðurlandsbraut.
Tek undir að þetta sé leiðarvalvélina að kenna líka.

Svo er spurning hvort ekki mætti merkja ALLAR götur og stígar með bicycle=yes, því það má hjóla alsstaðar, nema á gangstéttum á Laugavegi eftir sumum stígum eftir Ægissíðu og inn í Fossvog, og loks í Hvalfjarðargöngunum.

--
Regards / Kvedja
Morten Lange, Reykjavík


------------------------------------------------------------------------
*From:* Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is>
*To:* OpenStreetMap in Iceland <talk-is@openstreetmap.org>
*Sent:* Mon, 9 May, 2011 16:00:20
*Subject:* Re: [Talk-is] Bakka með breytingu sem rauf tengingu stíga ?

Hæ.

Þetta vandamál er hálfgert mér að kenna þar sem ég hef verið að stroka út stíga sem tengjast við enda gatna við yfirferð á LUKR stígum og það veldur greinilega vandræðum fyrir leiðarvélina þar sem tengingin er rofin við enda gatna.

Ég skal fara í að laga þetta fyrir hverfin sem ég hef unnið með. Hjólavefsjáin er samt að nota gömul gögn eins og sjá má af þeirri staðreynd að Grafarvogurinn og 104 Reykjavík eru löngu búin hvað stígana varðar en samt koma þeir ekki fram þar. Ef vandamálið er einnig þar er þetta einnig almennt vandamál með leiðarvélina og ekki bara í því sem ég gerði.

Gæturðu annars komið með dæmi svo við getum vandamálagreint þetta betur?

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

On 09/05/11 15:12, Morten Lange wrote:
> Sæl
>
> Ég hefði át að kveikja á perunni fyrr, en átakið Hjólað í vinnuna ytir eftir mér að skoða betur hvernig hjolacefsja.is virkar.
> "Rötunarvélin" virkar núna nánast ekki, amk í Reylkjavík.
> Kerfið sér að stígar séu eylönd, enda eru stíganir skilgreindir þannig í LUKR.
>
> Mér fyndist betra að hafa bæði inni, þangað til búið séw að tengja saman LUKR-stígana. > Nema mjög veigamikill rök hniga að því að gera það ekki. ( Eða ef vænta megi góða tengingu stíga, og gangstétta innan fárra daga )
>
> --
> Regards / Kvedja
> Morten Lange, Reykjavík
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is@openstreetmap.org <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to