Varðandi á gangstéttum og stígum yfir götur, þá mætti færa rök fyrir því að
ekki ætti að kortleggja svoleiðis nema þar sem merktar gangbrautir eða
gönguljós er að finna (ekki kortleggja eitthvað sem ekki á sér stoð í
raunveruleiknaum).  Eins mætti líka færa rök fyrir því að gangandi
vegfarendur færu vissulega yfir götuna við t.d. gatnamót og því ástæða til
að tengja stíga þar yfir.

Mín persónulega skoðun er sú að það ætti að tengja stígana svo auðveldara sé
fyrir tölvur að reikna út bestu leiðir fyrir gangandi og hjólandi.  Hvernig
þetta lítur út á kortinu er eitthvað fyrir renderana að finna út úr.  Kanski
ætta að leggja til nýtt tag fyrir þetta, tengingu yfir götu sem ekki sést
(render=no t.d.)?

Kv. Þórir Már

2011/8/15 Thorir Jonsson <thorir...@gmail.com>

> Hér er svar frá mér frá því á laugardaginn sem ég óvart vistaði í stað þess
> að senda á listann:
>
> Sælir félagar.
>
> Ég er sammála Morten og Pjetri, við þurfum að skoða þessi mál með
> gangstéttar, göngu- og hjólastíga og ákveða hvernig við viljum að þeir séu
> merktir.  Hér á landi eru lang flestir stígar bæði fyrir gangandi og
> hjólandi og því erfitt að átta sig á því hvernig eigi að merkja þá.
> Sumstaðar eru aðskildar reinar fyrir hjólandi og gangandi annarsstaðar eru
> engar merkingar.
>
> Ég hef hingað til merkt hjólastíga sem highway=cycleway og blandaða hjóla-
> og göngustíga og gangstéttar sem highway=footway, og bicycle=yes.
>
> Hafið þið einhverjar betri tillögur?  Hvað með tengingar yfir götur og
> gatnamót?
>
> Kv. Þórir Már
>
>
>
> 2011/8/15 Baldvin Hansson <bald...@rogg.is>
>
>> >#2
>> >Mörg hús í Lambastaðahverfi eiga sér nöfn auk númera frá því í den.
>> >Auðvitað á maður að merkja þetta líka eða hvað?
>>
>> Mér finnst ástæða til að merkja bæði. En það er bara mín persónulega
>> skoðun.
>> Hef ekki skoðað hvernig þetta er almennt gert þar sem sambærilegar
>> aðstæður
>> eru uppi, t.d. í öðrum löndum.
>>
>> >#3
>> >Ég var að duglegur í smá-stund við að setja inn gangstíga og gangstéttir.
>> >Komst svo að raun um að þetta ruglar rútureikninga forrita osmand,
>> navit...
>>
>> Mér hefur sýnst að þegar verið er að henda út eldri gögnum og nota í
>> staðinn
>> LUKR gögnin þá verði einfaldlega að hafa í huga að það þarf að tengja
>> stígana við göturnar hvar sem almennt má telja að "rétt" sé að fara á og
>> af
>> stígunum. Ég skoðaði þetta aðeins í kringum Ferjuvog í Reykjavík t.d. þar
>> sem mér sýnist eldri gögn hafa verið þokkalega tengd en ný gögn alls ekki.
>> Þetta býr til eyjur af stígum sem rútunin (með tilliti til hjólreiða t.d.)
>> tekur aldrei inn í myndina og niðurstaðan verður víða fjarri því sem best
>> gæti orðið.
>>
>> Getur verið að það sé til betri leið, en mér sýnist einfaldlega verða að
>> tengja stígana gatnakerfinu á viðeigandi stöðum. En þá fæst líka ágætis
>> virkni á þetta.
>>
>> >Komst einnig að raun um að reglan í OSM er:
>> >       "Ekki vera að flækja málið með gangstéttum"
>>
>> Það er reyndar sjónarmið, finnst mér, að á meðan við erum enn ekki komin
>> inn
>> með allar helstu götur almennt, þá sé kannski ástæða til að láta vera að
>> merkja allar gangstéttar meðfram öllum vegum sem nú eru komnir inn.
>> Vinnunni
>> væri betur varið í að þétta veganetið og auka við aðrar staðarupplýsingar
>> á
>> svæðum þar sem enn er mikið óunnið. En hins vegar finnst mér alltaf ástæða
>> til að líta á stíga sem liggja aðskildir frá vegum þannig að þá eigi að
>> kortleggja líkt og vegina, jöfnum höndum (eins og stíg meðfram
>> Suðurlandsbraut t.d.).
>>
>> Þegar einstaklingur lítur á kortið og skoðar hvaða leið hann getur valið á
>> milli tveggja staða (óháð því svo hvað sjálfvirk rútun myndi gera í slíku
>> tilfelli) þá er okkur eðlislægt að draga þá ályktun að meðfram götum á
>> Íslandi eru gangstéttar og því óþarfi kannski að kortið sýni þær
>> sérstaklega
>> til að teljast vel nothæft. En hins vegar hjálpa stígar sem kortið sýnir
>> einstaklingnum við að velja leið í slíkum tilfellum.
>>
>> mbk,
>> Baldvin
>>
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is@openstreetmap.org
>> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
>
>
_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to