Núna á mánudaginn eftir helgi, 30. maí 2016 - heldur Hliðskjálf - móðurfélag OpenStreetMap á Íslandi, aðalfund sinn í Hamraborg, Kópavogi.

Fundarsalurinn er á neðstu hæð Bókasafns Kópavogs. Fyrir utan húsið stoppa leiðir 1, 2, 4, 28 og 35 og ágætis hjólaleiðir eru þangað. Bílastæði eru í fríu bílastæðahúsi við Molann, á plani milli Bókasafns og Kópavogskirkju og upp að kirkjunni sjálfri.

Sjá einnig á fundarboðinu á vef okkar: http://www.hlidskjalf.is/2016/05/22/adalfundur-hlidskjalfar-30-mai-2016/

Öllum er frjálst að koma og taka þátt í fundi og starfi.


kveðja

Jóhannes formaður


_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to