Sælt veri fólkið;

Til fróðleiks: Þessar skilgreiningar duttu núna eftir áramótin inn til þýðinga í OSMAnd og tengdum forritum:

Scoria = Gjallgígur
Shield = Dyngja
Maar = Ker
Stratovolcano = Eldkeila
Lava dome = Hraungúll
Caldera = Askja

Svo er þarna líka "Dirt" sem hlýtur að vera einhverskonar leirgígur/pyttur/hver sem ég hef ekki ennþá fundið íslenskt fræðiheiti yfir, en það er greinilega verið að ræða það á spjallsíðunni <https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Talk:Approved_features/Tag:natural%3Dvolcano> hvar eldfjöll endi og jarðhitamyndanir taki við.

Þessu til viðbótar eru skilgreiningar á stöðu eldstöðvanna:

Last eruption = Gaus síðast
Number of eruptions = Fjöldi gosa
Inactive = Óvirkt
Active = Virkt
Dormant = Sofandi
Extinct = Útbrunnið

Þetta tengist óneitanlega því sem þið voruð að ræða; hvaða skilgreiningu ætlið þið að nota til að skilgreina virk eldfjöll?

Venjuleg er talað um virkar eldstöðvar þar sem gosið hefur á síðustu 10.000 árum (gos á nútíma - eftir ísaldarskeið), sjá t.d.: <https://www.visindavefur.is/svar.php?id=5316>. Ég hef hinsvegar hitt franska jarðfræðinga sem miða við 100.000 ár (til að ná eldfjöllunum í Auvergne inn fyrir rammann), en svo eru einhverjir jarðeðlisfræðingar sem miða við þann tíma sem kvikuhólf geta tekið í að fyllast og kvikuna að skiljast ( => líparítsprengigos eins og í Öræfajökli = u.þ.b. 400 ár). Í þessu síðasta tilfelli væri með öryggismörkum sennilega miðað við að virkar eldstöðvar hafi gosið á síðustu 1.000 árum, annars teljist þær "sofandi".

Almenningur skilur þetta hugsanlega allt öðruvísi, spurningin er við hvað ætti að miða? Mér finnst sjálfum eðlilegast að miða við þessar 32 eldstöðvar á eldfjallavefsjánni.

Bkv,
Sveinn í Felli

Þann 27.1.2020 14:33, skrifaði Thorir Jonsson:
Það er ekki slæm hugmynd Morten.

Það er hægt að finna upplýsingar um stöðu þeirra á íslensku
eldfjallavefsjánni: http://islenskeldfjoll.is/

Ég veit ekki hvernig er með höfundarrétt á þessum upplýsingum en geri ráð
fyrir því að það ætti að vera auðvelt að fá að nota þau í OSM ef maður
biður fallega.

Kv. Þórir Már

On Fri, Jan 24, 2020 at 5:57 PM Morten Lange via Talk-is <
talk-is@openstreetmap.org> wrote:

Hæ,

Ætti ekki að bæta við nokkrum virkum eldfjöllum á Íslandi?
Sjá http://overpass-turbo.eu/s/Q4d

Mér datt í hug amk
Hekla, Heimaey, Surtsey og Bárðarunga

Svo eru fleiri hér og sennilega hægt að miða við þessu sem heimild:
http://www.islenskeldfjoll.is/


--
Regards / Kveðja / Hilsen Morten Lange

----- Forwarded message -----
*From:* Mateusz Konieczny via Tagging <tagg...@openstreetmap.org>
*To:* Tag discussion, strategy and related tools <
tagg...@openstreetmap.org>
*Cc:* Mateusz Konieczny <matkoni...@tutanota.com>
*Sent:* Friday, 24 January 2020, 14:13:37 CET
*Subject:* Re: [Tagging] Active volcanoes

There is some documentation at
https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:natural%3Dvolcano

Note that wiki is not binding and may be wrong.

Also, there are apparently multiple ways
to classify volcano activity

See for example
https://simple.m.wikipedia.org/wiki/List_of_active_volcanoes


24 Jan 2020, 14:04 by cascaf...@gmail.com:

vHello ML!
this query [1] is supposed to display active volcanes. I made some
research using Sentinel-2 browser, but it happens that most volcanoes
doesn't have an infrared response [2].

Which is the criteria to tag volcanoes as volcano:status=active?


[1] http://overpass-turbo.eu/s/Q3E
[2] http://bit.ly/30OIUKw

_______________________________________________
Tagging mailing list
tagg...@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/tagging


_______________________________________________
Tagging mailing list
tagg...@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/tagging
_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is



_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is



_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to