Vandinn er með ár eins og Gljúfurá sem skilur að austur og vestur
húnavatnssýslu. Henni er skipt í tvennt og ekki hægt að sameina þær. Þetta
á við um margar ár. Sama áin á ekki að vera skipt í tvennt.

Og þar sem OSM segir að áin er er ekki endilega þar sem sveitarfélögin
skilgreina landamæri sín (getur munað nokkrum metrum).

Það eru ábyggilega fleiri ástæður, en þetta er það sem mér dettur í hug með
mína takmörkuðu þekkingu á OSM.

Held að það sé best að taka út öll sveitafélagamörk út og setja inn það sem
er á lmi.is

Eysteinn

On Thu, Dec 15, 2022, 11:34 Tómas Ingi Hrólfsson <tomasing...@gmail.com>
wrote:

> Sæl,
>
> Ég hef einmitt velt þessu fyrir mér. Mér tekst ekki að finna heimildina
> núna, en í umræðu um deilur sveitarfélaga á suðvesturhorninu var því haldið
> fram að ef ágreiningur er á milli hnita og kennileita á mörkum
> sveitarfélaga, þá skuli kennileitin alltaf gilda fram yfir hnitin. Þannig
> tel ég að sveitarfélagamörkin séu óhjákvæmilega háð landfræðilegum mörkum,
> nema annað komi fram. Það gæti verið talin besta venja í ýmsum löndum að
> hafa þetta tvennt óháð, en ég tel að það þurfi að taka ákvörðun um það í
> hverju tilfelli fyrir sig. Þess ber að geta að mörkin sem eru hjá LMÍ eru
> sjálf dregin, beint eða óbeint, eftir þessum sömu kennileitum.
>
> Ég þekki ekki til þess að viðhald se mikið erfiðara þegar kennileiti eru
> hluti af mörkum; ef einhver veit um gott dæmi þá er ég mjög forvitinn að
> sjá það.
>
> -Tómas Ingi
>
> On Thu, 15 Dec 2022 at 12:04, Jóhannes Birgir Jensson <j...@betra.is>
> wrote:
>
>> Sæl verið
>>
>> Fékk ábendingu um að sveitarfélagamörk væru að klístrast saman við ár og
>> fleira, sem gerir viðhald á þeim og öðrum kennileitum miklu erfiðara. Dæmi
>> til dæmis Bláskógabyggð sem er með 10 árhluta sem hluta af "relationinu".
>>
>> https://www.openstreetmap.org/relation/9177051#map=9/64.4711/-20.1114
>>
>> Stjórnsýslumörk ættu,samkvæmt bestu venju, að vera óháð landfræðilegum
>> mörkum, mér sýnist því að best gæti verið að hreinlega eyða þeim
>> sveitarfélögum sem nota önnur vensl og flytja inn mörkin sem LMÍ er með hjá
>> sér og eru opin og frjálst að nota. Þau væru þá ekki vensluð við önnur
>> mörk, vegi, ár, strandlínur eða annað.
>>
>> --Jóhannes / Stalfur @ OSM
>> _______________________________________________
>> Talk-is mailing list
>> Talk-is@openstreetmap.org
>> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is@openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to