Sælt veri fólkið;

Var að prófa að veiða fitjur húsa á Akureyri beint úr OSM inn í QGIS með QuickOSM-viðbótinni.

Ég ætlaði að vera sniðugur og ná öllum húsakosti með Key=building og Value=yes, en þá komu bara fjölbýlishús. Til að ná í einbýli þyrfti gildið að vera Value=residential og aftur sértækt Value=school til að fá skóla, o.s.frv. Það virðist eins og hafi gleymst að merkja building=yes fyrir alla/flesta fláka aðra en fjölbýlishús hér á Akureyri.

Þetta virðist t.d. ekki vera í gangi á Grenivík, þar sýnist mér öll hús vera merkt með building=yes, altént samkvæmt stikkprufu.

Ef þetta er röng skráning hérna á Akureyri, hvernig væri best að laga þetta? Ætli þetta sé svona í fleiri tilfellum?

Ég náði svosem öllum þessum byggingum með því að velja svæði út frá radíus, en eftir stendur að hitt hefði verið snyrtilegra: ná öllum byggingum tiltekins sveitarfélags á einu bretti.

Bestu kveðjur,
Sveinn í Felli

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to