Hæ,
Fór að gramsa á netinu og fann þetta: XML Software Guide. Ekki búinn að
skoða það neitt sérstaklega vel, en þarna eru einhverjir Java ritlar:
http://www.stars.com/Software/XML/
kveðja,
Guðmundur
On Mon, Apr 16, 2001 at 08:43:58PM +0000, Logi Ragnarsson wrote:
> mánudagur 16. apríl 2001 22:15, Gudmundur Erlingsson skrifaði:
>
> > Ætli Emacs komist ekki næst þessu. Ef það er til eitthvað fullkomnara fyrir
> > linux/unix þarf örugglega að borga fullt fyrir það.
>
> Amm... kanski ég kíki á það á eftir.
>
> > > Næsta þrep er að nota XLS til að breyta þessum XML skrám í HTML til
> > > birtingar á vefnum. Mér sýnist cocoon frá Apache hópnum einmitt vera
> > > græjan til þess og ef ég sef mjög lítið í nótt verður það komið upp
> > > einhverstaðar (líklega á ferðavélinni minni) fyrir morgun.
> >
> > Einhvern tímann var ég að skoða svona græjur, cocoon lýtur vel út. Það var
> > líka önnur sem leit ekki síður vel út sem heitir AxKit, opin source að
> > sjálfsögðu og gerð fyrir Apache. Kosturinn við AxKit er að þú getur notað
> > XSL en líka þeirra eigið skriftumál, sem er einfaldlega Perl með
> > smáviðbótum. Það getur haft ýmsa kosti í för með sér, t.d. er þónokkuð
> > auðveldara að meðhöndla regular expressions í Perl en XSL. Ef þú vilt kíkja
> > á það: www.axkit.org.
>
> Ég er (svotil) búinn að skrifa XSL vörpunina til að birta þetta, en ég held
> að allavega í fyrstu borgi sig að byggja statískar html síður uppúr xmlinu
> þegar xmlið er uppfært.
>
> Mig vantar reyndar eitt í XSLið. Það væri auðvelt í perl, en mig vantar að
> breyta öllum íslenskum stöfum í samsvarandi ascii stafi, þeas henda
> broddstöfum og breyta þ,ð í th,d. Kann það einhver? Annars er það vætnanlega
> bara hálftíma lestur :-)
>
> Núna ætla ég að fara í það að láta byggja þetta dót sjálfkrafa uppúr CVSinu
> og aðeins að lagfæra og bæta við DTD skilgreininguna. Þá verpur eiginlega
> bara hægt að opna dótið.
>
> --
> Logi Ragnarsson - [EMAIL PROTECTED]
> Some day we all shall be out of scope
_________________________________________________________
Do You Yahoo!?
Get your free @yahoo.com address at http://mail.yahoo.com