Re: [Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi

2014-09-16 Thread Arni Davidsson
Það er flott.


2014-09-16 15:43 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson :

>  Ísland dettur inn í næstu uppfærslu af cycle.travel (þeir uppfæra einu
> sinni á mánuði).
>
>
> Þann 30.8.2014 18:07, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:
>
> Path er ekki vinsælt heldur
>
> http://www.openstreetmap.org/user/Richard/diary/20333
>
> Ég ætla að kíkja á cycle.travel fólkið og gá hvernig gengur með að smella
> okkur þar inn og taka þetta áfram.
>
>  Þann 29.8.2014 14:08, skrifaði Morten Lange:
>
>  Hæ
>
>  Hef ekki náð að taka þátt í umræðunum, en þangað til niðurstaða er
> fengin ætti kannski að segja frá því á Wiki.openstreetmap.org að umræður
> séu í gangi á talk-is ?
>
> --
> Regards / Kveðja / Hilsen
> Morten Lange, Reykjavík
>
>--
>  *From:* Svavar Kjarrval  
> *To:* talk-is@openstreetmap.org
> *Sent:* Monday, 25 August 2014, 16:40
> *Subject:* Re: [Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi
>
>  Hæ.
>
> Skoðaði highway=footway á wiki síðu OSM og þar er ekki gefið að það skuli
> túlka sjálfgefið sem bicycle=no heldur gefið frjálst á hvorn veginn það er
> túlkað af hálfu algrímanna. Ef við tökum bicycle=yes af yrði það líklega
> mismunandi milli algrímanna hvort þeir beini hjólafólki eftir stígum eða
> götum.
>
> Einhverjar umræður hafa verið í gangi á aðalpóstlista OSM um sjálfgefin
> gildi á tilteknum svæðum þar sem hægt væri að setja inn sjálfgefnar
> stillingar í samræmi við lög og reglur sem gilda á hverju svæði, svo ekki
> þurfi að merkja allt innan svæðisins með einhverju sem gildir alls staðar.
> Veit samt ekki hvort eða hvenær slíkar sjálfgefnar skilgreiningar yrðu
> innleiddar.
>
> Persónulega hefði ég talið það eðlileg virkni fyrir hjólaumferð í
> rútunaralgrímum að beina fólki á stíga ef það er styttri og/eða öruggari
> leið, sérstaklega ef um er að ræða óvant hjólafólk. Fólkið sem telur sig
> ráða við að hjóla á götum getur auðvitað hunsað tillögu algrímanna um að
> nota stíga ef aðstæður leyfa, eða fólkið sem semur algrímana geri ráð fyrir
> þessu og lagi algrímana að þessum veruleika. Ef ég ætlaði að fara stystu
> leiðina fyrir hjól myndi ég eðlilega vilja fá leiðarlýsingu þar sem ég get
> notfært mér alla stíga sem ég má hjóla á.
>
> Ef bicycle=yes yrði tekið af í Fellahverfinu, rútunaralgrímurinn myndi
> túlka skortinn sem bicycle=no og ég myndi óska eftir hjólaleið frá
> Völvufelli 11 og til Drafnarfells 2, þá myndi hann mæla með því að ég myndi
> hjóla eftir götunni út Völvufellið og síðan hringinn í kringum húsin
> meðfram Suðurfelli og Norðurfelli áður en ég kemst á Drafnarfell. Með
> bicycle=yes myndi algrímurinn mæla með því að ég myndi hjóla stuttan stíg
> norður að Drafnarfelli 2.
> Með bicycle=yes:
> http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.824661,64.1007793&end=-21.8247791,64.1012104&pref=Bicycle&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false
> Án bicycle=yes:
> http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.824661,64.1007793&end=-21.8247791,64.1012104&pref=Fastest&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false
>
> Síðan eru auðvitað líklegri tilvik eins og ef einhver biður um hjólaleið
> milli Seljahverfisins í Reykjavík og yfir í Lindahverfið eða Salahverfið í
> Kópavogi (ekki endilega milli heimilisfanga sem eru rétt hjá hvort öðru).
> Fyrri áhyggjurnar í þessari umræðu voru einnig að OpenCycleMap birti of
> mikið af bláum leiðum sem eiga að vera sérstakar hjólaleiðir. En ef merkja
> á stíga með bicycle=yes á stígum sem eru ekki meðfram götum mun birtast
> hellingur af bláum blettum á því korti ef reynt er að halda í rútunina. Ef
> úrval slíkra stíga er of strangt mun fólk undrast af hverju tilteknir
> stígar á kortinu urðu ekki fyrir valinu þegar þeir eru augljóslega hentugri
> en sú leið sem var valin. Þetta er nokkurn veginn það sem fólk er að lenda
> í þegar stígar eru ekki tengdir almennilega.
>
> Tæknilega séð eigum við að merkja stíga sem eru fyrir ótilgreindar
> tegundir óvélknúinnar umferðar sem highway=path. Gætum íhugað að breyta
> highway=footway í highway=path nema á þeim stöðum þar sem skilgreint er
> sérstaklega að stígurinn sé fyrir ákveðna umferð eingöngu (eins og sérstaka
> hjólastíga). Þá getum við sleppt bicycle=yes tagginu þar sem það er
> sjálfgefið og liturinn fyrir það er ekki æpandi á OpenCycleMap.
>
> Varðandi úrlausn myndi ég ekki mæla með því að stígar meðfram götum yrðu
> teknir út enda myndi það brjóta nokkuð mikið í bága við ‚don't tag for the
> renderer‘ regluna (sem á einnig við um rútanir). Það ferli að velja
> sérstaklega hvaða leiðir eru viðeigandi og merkja þær (þar með talið koma
> sér saman um almenn viðmið og viðhalda merkingum) getur alveg eins verið
> jafn fyrirhafnarmikið og setja inn þveranir þar sem á við. Auk þess væri
> það nokkuð selective tagging að fara að stunda það að velja leiðir með
> þessum hætti og myndi vera langt frá því að leysa úr rútunarvandanum fyrir
> gangandi vegfarendur (jafnvel með notkun á sidewalk tagginu). Ef gögnin eru
> rétt og rútunaralgrímar eru að mæla með einhverju röng

Re: [Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi

2014-09-16 Thread Jóhannes Birgir Jensson
Ísland dettur inn í næstu uppfærslu af cycle.travel (þeir uppfæra einu 
sinni á mánuði).



Þann 30.8.2014 18:07, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:

Path er ekki vinsælt heldur

http://www.openstreetmap.org/user/Richard/diary/20333

Ég ætla að kíkja á cycle.travel fólkið og gá hvernig gengur með að 
smella okkur þar inn og taka þetta áfram.


Þann 29.8.2014 14:08, skrifaði Morten Lange:

Hæ

Hef ekki náð að taka þátt í umræðunum, en þangað til niðurstaða er 
fengin ætti kannski að segja frá því á Wiki.openstreetmap.org að 
umræður séu í gangi á talk-is ?

--
Regards / Kveðja / Hilsen
Morten Lange, Reykjavík


*From:* Svavar Kjarrval 
*To:* talk-is@openstreetmap.org
*Sent:* Monday, 25 August 2014, 16:40
*Subject:* Re: [Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og
hjólandi

Hæ.

Skoðaði highway=footway á wiki síðu OSM og þar er ekki gefið að
það skuli túlka sjálfgefið sem bicycle=no heldur gefið frjálst á
hvorn veginn það er túlkað af hálfu algrímanna. Ef við tökum
bicycle=yes af yrði það líklega mismunandi milli algrímanna hvort
þeir beini hjólafólki eftir stígum eða götum.

Einhverjar umræður hafa verið í gangi á aðalpóstlista OSM um
sjálfgefin gildi á tilteknum svæðum þar sem hægt væri að setja
inn sjálfgefnar stillingar í samræmi við lög og reglur sem gilda
á hverju svæði, svo ekki þurfi að merkja allt innan svæðisins með
einhverju sem gildir alls staðar. Veit samt ekki hvort eða hvenær
slíkar sjálfgefnar skilgreiningar yrðu innleiddar.

Persónulega hefði ég talið það eðlileg virkni fyrir hjólaumferð í
rútunaralgrímum að beina fólki á stíga ef það er styttri og/eða
öruggari leið, sérstaklega ef um er að ræða óvant hjólafólk.
Fólkið sem telur sig ráða við að hjóla á götum getur auðvitað
hunsað tillögu algrímanna um að nota stíga ef aðstæður leyfa, eða
fólkið sem semur algrímana geri ráð fyrir þessu og lagi algrímana
að þessum veruleika. Ef ég ætlaði að fara stystu leiðina fyrir
hjól myndi ég eðlilega vilja fá leiðarlýsingu þar sem ég get
notfært mér alla stíga sem ég má hjóla á.

Ef bicycle=yes yrði tekið af í Fellahverfinu, rútunaralgrímurinn
myndi túlka skortinn sem bicycle=no og ég myndi óska eftir
hjólaleið frá Völvufelli 11 og til Drafnarfells 2, þá myndi hann
mæla með því að ég myndi hjóla eftir götunni út Völvufellið og
síðan hringinn í kringum húsin meðfram Suðurfelli og Norðurfelli
áður en ég kemst á Drafnarfell. Með bicycle=yes myndi algrímurinn
mæla með því að ég myndi hjóla stuttan stíg norður að Drafnarfelli 2.
Með bicycle=yes:

http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.824661,64.1007793&end=-21.8247791,64.1012104&pref=Bicycle&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false
Án bicycle=yes:

http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.824661,64.1007793&end=-21.8247791,64.1012104&pref=Fastest&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false

Síðan eru auðvitað líklegri tilvik eins og ef einhver biður um
hjólaleið milli Seljahverfisins í Reykjavík og yfir í
Lindahverfið eða Salahverfið í Kópavogi (ekki endilega milli
heimilisfanga sem eru rétt hjá hvort öðru). Fyrri áhyggjurnar í
þessari umræðu voru einnig að OpenCycleMap birti of mikið af
bláum leiðum sem eiga að vera sérstakar hjólaleiðir. En ef merkja
á stíga með bicycle=yes á stígum sem eru ekki meðfram götum mun
birtast hellingur af bláum blettum á því korti ef reynt er að
halda í rútunina. Ef úrval slíkra stíga er of strangt mun fólk
undrast af hverju tilteknir stígar á kortinu urðu ekki fyrir
valinu þegar þeir eru augljóslega hentugri en sú leið sem var
valin. Þetta er nokkurn veginn það sem fólk er að lenda í þegar
stígar eru ekki tengdir almennilega.

Tæknilega séð eigum við að merkja stíga sem eru fyrir
ótilgreindar tegundir óvélknúinnar umferðar sem highway=path.
Gætum íhugað að breyta highway=footway í highway=path nema á þeim
stöðum þar sem skilgreint er sérstaklega að stígurinn sé fyrir
ákveðna umferð eingöngu (eins og sérstaka hjólastíga). Þá getum
við sleppt bicycle=yes tagginu þar sem það er sjálfgefið og
liturinn fyrir það er ekki æpandi á OpenCycleMap.

Varðandi úrlausn myndi ég ekki mæla með því að stígar meðfram
götum yrðu teknir út enda myndi það brjóta nokkuð mikið í bága
við ‚don't tag for the renderer‘ regluna (sem á einnig við um
rútanir). Það ferli að velja sérstaklega hvaða leiðir eru
viðeigandi og merkja þær (þar með talið koma sér saman um almenn
viðmið og viðhalda merkingum) getur alveg eins verið jafn
fyrirhafnarmikið og setja inn þveranir þar sem á við. Auk þess
væri það nokkuð selective tagging að fara að stunda það að velja
leiðir með þessum hætti og myndi vera langt frá því að leysa úr
rútunarvandanum fyrir gangandi vegfarendur (jafnvel með notkun á
sidewalk taggin