Ég breytti gögnunum í OSM format með Merkaartor http://drop.io/lukrosm, vörpunin er rétt sýnist mér.
Einnig fiktaði ég eitthvað með ogr2ogr og tókst að fá það til að virka með því að breyta skránni gonguleidir_LUKR_170910.prj svo PROJECTION["Lambert_Conformal_Conic"] verður PROJECTION["Lambert_Conformal_Conic_1SP"] eða PROJECTION["Lambert_Conformal_Conic_2SP"], er ekki búinn að skoða útkomuna. Varðandi leyfismál þá getum við örugglega fengið þau skýrari. Þau hjá borginni voru að drífa sig að halda upp á þetta í Samgönguviku og áttuðu sig ekki held ég á því hversu mikilvægt er fyrir okkur að alls engin óvissa ríki í kringum notkunarleyfið. Við ræddum fleiri týpur af gögnum á fundi, t.d. gatnakerfið og hæðarlínur sem eru mikilvægar upplýsingar fyrir hjólreiðafólk. Ég þarf bara að tala betur við Pálma hjá Reykjavíkurborg og sjá hvort við fáum þau gögn líka. kv. Björgvin 2010/9/18 Ævar Arnfjörð Bjarmason <ava...@gmail.com> > Hér er smá uppfærsla á LUKR + OpenStreetMap málinu, ég sendi þetta á > OpenStreetMap póstlistann fyrir Ísland, Pálma hjá Reykjavík og á > nokkra aðra: > > Björgvin Ragnarsson tók við diski með LUKR gögnum í dag sem við erum > með leyfi til að nota í OpenStreetMap. > > Það var líka ritað um þetta í dagbók borgarstjóra: > http://www.facebook.com/dagbok.borgarstjora (kann einhver að tengja > *bara* í viðkomandi þráð þarna á Facebook?) > > Hérna eru gögnin eins og þau komu frá borginni: > > http://github.com/avar/lukr-osm-donation-2010-09-18 > > Og hérna er conversion á þeim í WGS84 sem *virkaði ekki*: > > > http://github.com/avar/lukr-osm-donation-2010-09-18/raw/convert/gonguleidir_LUKR_170910-wgs84.osm > > Ég breytti hnitunum úr ISNET93 í WGS84. En þetta er líkast til í > sérhnitakerfi sem LUKR notar, ég veit ekki hvernig á að breyta því > almennilega, en það fylgir með gonguleidir_LUKR_170910.prj skrá með > vörpuninni. Það þarf bara að tala rétt við gdal/proj4 til að fá þetta > í gegn, aðstoð með það velkomin. > > En það er hægt að skoða þessa OSM skrá í t.d. JOSM og sjá circa > hvernig þetta lítur út. > > Þessi gögn eru við fyrstu skoðun bara stígar og gangstéttir í > Reykjavík, s.s. engir bílvegir, byggingar og annað. Ég veit ekki > hvernig þessar umræður fóru hjá borginni/LUKR með það hvaða hluta af > þessum gögnum við getum fengið (bætti Pálma hjá Reykjavík á CC), > s.s. hvort það sé um það að ræða að við fáum stærri hluta af > grunninum. > > Það væri mun betra fyrir almenna notkun á LUKR gögnum bæði fyrir okkur > og aðra ef þetta væri stærri hluti af grunninum. Það er svoldið vesen > að sameina OSM og LUKR gögnin hjá okkur ef þetta eru bara gangstéttir, > því við þurfum þá að klæða þá utan um vegi sem eru þegar til. > > Svo þarf líka að spá í hvernig við ætlum að uppfæra þessi gögn ef og > þegar þau fara inn. Það væri leiðinlegt að setja þetta inn á þann máta > að við endum með úrelt gögn eftir 1 ár. > > Svo er annað, ég fæ ekki betur séð en að skv. þessari yfirlýsingu sem > var skrifað undir: > > > http://github.com/avar/lukr-osm-donation-2010-09-18/blob/convert/Scan.JPG > > Sé ósamhæf frjálsum leyfum eins og OpenStreetMap er undir, því þarna > er nefnt að niðurfelling gjalds sé bundið við OpenStreetMap > verkefnið. En þar sem OpenStreetMap er að búa til frjálsan grunn sem > hver sem er má nota í tengslum við hvaða verkefni sem er. > > Svo er líka spurning hvort með ODbL leyfinu sem OpenStreetMap er að > fara nota að það sé ekki hægt að koma því þannig fyrir að LUKR og > aðrir geti svo tekið þessi gögn aftur út úr OSM eftir einhverjar > breytingar og notað þau. > > Einfaldasta lausnin á öllum þessum leyfismálum væri að fá einhvern sem > hefur umboð til að gefa okkur gögnin til að skrá sig á > openstreetmap.org, samþykkja "contributor terms" skilmálana, og hlaða > inn gögnum. Þessir skilmálar sjást hérna: > > http://www.osmfoundation.org/wiki/License/Contributor_Terms > > Og voru nýlega skrifaðir af lögfræðingum á vegum OSM einmitt fyrir > svona aðstæður. > > Svona í lokin: Það er margt sem þarf að gera og laga, og þá kannski > helst samkiptin á milli okkar allra. Allt-í-allt er þetta alveg > frábært framtak hjá Reykjavíkurborg og LUKR sem ég vona að heppnist > sem best. > > Vonandi náum við að koma þessu öllu í gegn þannig að allir málsaðilar > hagnist á þessu, og að þetta verði fordæmisgefandi og ryðji veginn > fyrir opin gögn á Íslandi. >
_______________________________________________ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is