Þetta er frábært, vel gert! 2012/7/18 Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is>: > Hæ. > > Eftir mikla vinnu get ég með ánægju sagt að Hafnarfjörður er ágætlega > nálægt því að vera kláraður. Flestar, ef ekki allar götur, hafa verið > leiðréttar í samræmi við BING loftmyndirnar og húslínur eru til staðar > svo langt sem loftmyndirnar leyfa. Meiri hluti húsa bæjarins hafa verið > merkt með húsnúmerum og tengdar við götur en það ferli mun líklegast > klárast á næstu tveim vikum. > > Mig langar að biðja ykkur um að nostra smá við bæinn líka svo hægt sé að > senda út fréttatilkynningu þegar það helsta er komið. Það sem mætti gera > er að bæta við fleiri gangstígum, gangbrautum, notkun landsvæða (landuse > tagið) og fleira sem hægt er að álykta út frá loftmyndunum. Ef ykkur > grunar að eitthvað sé rangt en skortir upplýsingar til að laga það, > merkið villuna með OpenStreetBugs. > > Húsnúmeramerking og POI söfnun er í gangi af minni hálfu en það myndi > varla saka ef þið gætuð bætt við því sem þið vitið af nú þegar. > > Með kveðju, > Svavar Kjarrval > > _______________________________________________ > Talk-is mailing list > Talk-is@openstreetmap.org > http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is >
_______________________________________________ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is