Hæ.

Eftir mikla vinnu get ég með ánægju sagt að Hafnarfjörður er ágætlega
nálægt því að vera kláraður. Flestar, ef ekki allar götur, hafa verið
leiðréttar í samræmi við BING loftmyndirnar og húslínur eru til staðar
svo langt sem loftmyndirnar leyfa. Meiri hluti húsa bæjarins hafa verið
merkt með húsnúmerum og tengdar við götur en það ferli mun líklegast
klárast á næstu tveim vikum.

Mig langar að biðja ykkur um að nostra smá við bæinn líka svo hægt sé að
senda út fréttatilkynningu þegar það helsta er komið. Það sem mætti gera
er að bæta við fleiri gangstígum, gangbrautum, notkun landsvæða (landuse
tagið) og fleira sem hægt er að álykta út frá loftmyndunum. Ef ykkur
grunar að eitthvað sé rangt en skortir upplýsingar til að laga það,
merkið villuna með OpenStreetBugs.

Húsnúmeramerking og POI söfnun er í gangi af minni hálfu en það myndi
varla saka ef þið gætuð bætt við því sem þið vitið af nú þegar.

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

Attachment: signature.asc
Description: OpenPGP digital signature

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to