On 20/08/12 13:12, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote:
> 2012/8/19 Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is>:
>> Var að prófa landupplýsingagátt Landmælinga Íslands og sá að þeir bjóða upp
>> á WMS afhendingu sem þeir lista á vefsíðunni þeirra. Væri það þess virði að
>> fá leyfi til að nota þær fyrir OpenStreetMap? Þeir gefa upp slóðina á
>> færslunni sjálfri svo það getur varla verið um leyndarmál að ræða.
> Ég og Þórir fórum á fund með LMÍ fyrir nokkrum árum í von um að fá að
> nota eitthvað að gögnunum þeirra.
>
> Í stuttu máli vildi forstjóri LMÍ ekki gefa okkur gögn undir frjálsu
> leyfi, ástæðan verandi:
>
>  * Skv. lögum eru stofnanir eins og LMÍ með höfundarrétt á gögnum sem
> þær búa til.
>
>  * Þeim er gert að standa undir sínum rekstri
>
>  * Í tilfelli LMÍ er þetta gert með að selja aðgang að sínum
> landsupplýsingagrunni.
>
>  * Það væri mögulegt fyrir þá að gefa okkur eitthvað undir frjálsu
> leyfi, en með fjármálaóvissuna (þetta var nokkrum mánuðum eftir hrunið
> ef ég man rétt) voru þeir ekki til í það.
>
> Það væri vel þess virði að spurja aftur, en bara þótt þeir séu með WMS
> þjón þýðir það ekki að við getum notað gögn af honum.
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is@openstreetmap.org
> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Þetta seinasta er rétt. Þeir nefndu þetta með að þótt gögnin séu þarna
þýðir ekki að það sé leyfilegt að nota þau. Sendi þó tölvupóst og spurði
svo nú er það bara að bíða eftir svari. Þær manneskjur sem ég ræddi við
símleiðis voru persónulega fyrir því að gögn LMÍ ættu að vera frjáls en
lögin bundu hendur þeirra.

- Svavar Kjarrval

Attachment: signature.asc
Description: OpenPGP digital signature

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to