2012/8/20 Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is>: > > On 20/08/12 13:12, Ævar Arnfjörð Bjarmason wrote: >> 2012/8/19 Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is>: >>> Var að prófa landupplýsingagátt Landmælinga Íslands og sá að þeir bjóða upp >>> á WMS afhendingu sem þeir lista á vefsíðunni þeirra. Væri það þess virði að >>> fá leyfi til að nota þær fyrir OpenStreetMap? Þeir gefa upp slóðina á >>> færslunni sjálfri svo það getur varla verið um leyndarmál að ræða. >> Ég og Þórir fórum á fund með LMÍ fyrir nokkrum árum í von um að fá að >> nota eitthvað að gögnunum þeirra. >> >> Í stuttu máli vildi forstjóri LMÍ ekki gefa okkur gögn undir frjálsu >> leyfi, ástæðan verandi: >> >> * Skv. lögum eru stofnanir eins og LMÍ með höfundarrétt á gögnum sem >> þær búa til. >> >> * Þeim er gert að standa undir sínum rekstri >> >> * Í tilfelli LMÍ er þetta gert með að selja aðgang að sínum >> landsupplýsingagrunni. >> >> * Það væri mögulegt fyrir þá að gefa okkur eitthvað undir frjálsu >> leyfi, en með fjármálaóvissuna (þetta var nokkrum mánuðum eftir hrunið >> ef ég man rétt) voru þeir ekki til í það. >> >> Það væri vel þess virði að spurja aftur, en bara þótt þeir séu með WMS >> þjón þýðir það ekki að við getum notað gögn af honum. >> _______________________________________________ >> Talk-is mailing list >> Talk-is@openstreetmap.org >> http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is > > Þetta seinasta er rétt. Þeir nefndu þetta með að þótt gögnin séu þarna > þýðir ekki að það sé leyfilegt að nota þau. Sendi þó tölvupóst og spurði > svo nú er það bara að bíða eftir svari. Þær manneskjur sem ég ræddi við > símleiðis voru persónulega fyrir því að gögn LMÍ ættu að vera frjáls en > lögin bundu hendur þeirra.
Ég er ekki lögfróður um þetta og það getur vel verið að ég fari með rangt mál, en ég held að það sé ekki rétt að lögin bindi hendur þeirra. Lögin eru þannig strúktúruð held ég að það er erfitt fyrir þessar stofnanir að gefa út gögn sem dýrt er að búa til öðruvísi en að aðgangur sé seldur vegna þess hvernig fjárveitingar til þessara stofnana virka. Þetta er ekki tilfellið t.d. í Bandaríkjunum þar sem öll svona gögn eru frjáls, þannig sala af þeim er ekki reiknuð við fjárveitingar. En ég er nokkuð viss um að þær gætu samt ákveðið að gefa út gögn undir frjálsum leyfum, á sama hátt og þessar stofnanir gefa núna undir gögn sín undir séreignarleyfum. Af því gefnu ætti ekki að vera óhugsandi semja við þessar stofnanir um að fá frjálsan aðgang að gögnum sem þau sitja á, við gætum notað, en þau fá ekki tekjur af. T.d. er ég nokkuð viss um að ef við fengjum eitthvað eins og punkta fyrir öll fjöll Íslands frá þeim misstu þeir ekki af miklum tekjum og það kæmi okkur vel. Bjarki, vill svo til að þú vitir eitthvað um hvernig þessi mál standa lagalega séð? _______________________________________________ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is