Sæl öll.

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) gaf opinberlega út á vef sínum póstnúmeraskrá, þar á meðal skrá með þekjum þeirra [1]. Var þetta gert samkvæmt lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019, sem fól í sér færslu skrárinnar frá Íslandspósti til PFS. Í upprunalega frumvarpinu stóð ekki sérstaklega til að PFS gæfi hana út en því var bætt við í meðförum Alþingis með þeim orðum í nefndaráliti meiri hlutans að henni yrði miðlað opið og gjaldfrjálst [2].

Hvorki umfjöllunin um skrána á vef PFS né niðurhalaða útgáfan virðast minnast á neitt tiltekið leyfi sem skránni er dreift samkvæmt né að skránum sé dreift í þeim tilgangi. Því er opin spurning um heimild til að innleiða hana í OSM grunninn. Því miður hef ég of mikið að gera í náminu til að fara í þetta mál núna en ef einhver hér hefur bæði áhuga og tíma í verkið hvet ég viðkomandi til að hafa samband við PFS til að spyrja út í þetta.

[1] https://www.pfs.is/?PageId=3a034dad-e97b-11e2-b5a5-005056864800&newsid=bf4a107b-6906-11ea-9458-005056bc0bdb
[2] https://www.althingi.is/altext/149/s/1916.html

Með kveðju,
Svavar Kjarrval

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to