Ég sé reyndar að við erum með slatta af stikkprufum inni þegar maður skoðar í iD því að Mapillary punktarnir eru þarna inni og þeir benda til rúmlega meter hnikunar.

Background - haka við Photo Overlay (Mapillary)


Þann 30.10.2014 21:26, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:
Ég var að vandræðast í þessu um daginn, það var mismunur á loftmyndum og nýjustu myndirnar virðast hafa hnikast til um hálfan meter sýndist mér.

Ef þú ert með góðar stikkprufur þá er líklega málið að opna hverfið í JOSM, hlaða svo stikkprufunum inn, velja allt hverfið og hnika til þar til stikkprufurnar passa.

Svo þarf bara að laga tengingarnar út úr hverfinu sem eru ekki margar sem betur fer.

Aðrir sem hafa reynslu í svona heilhverfishnikunum endilega leggja sína leið til, ég hef sjaldan hræðst smá brute force en það er kannski ekki alltaf besta leiðin.

--Jói / Stalfur

Þann 30.10.2014 21:01, skrifaði bald...@baldvin.com:

Sæl. Mér sýnist Hvarfa hverfið í Kópavogi ekki rétt hnitað. Var að taka stikkprufur þar og það munar nógu miklu til að það skiptir máli ef verið er að nota kortin til að sýna önnur gögn ofan á þeim. Er þetta eitthvað sem einhver hefur skoðað nýlega og gæti haft skoðun á? Jafnframt, hefur einhver reynslu af því að leiðrétta svona heilt hverfi? Ef ég fer að gera þetta í höndum hús fyrir hús og götu fyrir götu er líklegt að það taki dálítið mikið á að gera það svo vel sé fyrir umhverfið sem þessu tengist og er rétt hnitað nú þegar. Allar ábendingar eða hugmyndir eru vel þegnar. Annars skoða ég þetta þegar ég fæ lausa nokkra klukkutíma.

Mbk,

Baldvin



_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is



_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to