[Talk-is] Breyta Vífilsstaðaveg í Spítalaveg?
Sæl Getur einhver breytt vegstubbnum hjá Vífilsstöðum úr Vífilsstaðavegur í Spítalavegur? Húsnúmerin eru rétt m.v. Spítalaveg. Tengsl við Vífilsstaðaveg hafa verið rofin. Leikskólinn Mánahvoll Spítalavegur 2a hefur líka verið reistur austan við Sunnuhvol Spítalaveg 2 og breytingar gerðar á bílastæðinu þar. kveðja Árni Davíðsson -- Árni Davíðsson arni...@gmail.com ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
[Talk-is] Hvernig á að merkja bílastæði við götu í OSM?
Sæl Ég er að velta fyrir mér merkingum á bílastæðum í OSM. Bílastæði við götu sem eru með gjaldskyldu hafa verið merkt að því er virðist með 'Tag:amenity=parking' og teiknaður flötur sem sýnir afmörkun bílastæðisins. Samsvarandi bílastæði án gjaldskyldu virðast þó sjaldan eða aldrei merkt. Er rétt að merkja bílastæði samsíða götu með þessum hætti? Eru þau kannski merkt svona til að getað sett inn upplýsingar um gjaldskyldu, fjölda stæða o.s.frv. Er réttara að merkja þau á einhver hátt sem hluta götunnar og er hægt að merkja þau þannig? Þess má geta að ég hef sérstakan áhuga á fjölda bílastæðanna og að geta dregið út þær upplýsingar sem eru settar inn um bílastæði úr OSM og unnið með þær síðar og tekið saman yfirlit yfir fjölda og gerð stæða. kveðja Árni Davíðsson -- Árni Davíðsson arni...@gmail.com ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
Re: [Talk-is] Hámarkshraði lækkaði um áramót í vistgötum
Hér er listi yfir vistgötur í Reykjavík. Ekki hávísindalegt en vísað í Moggann: https://www.dv.is/eyjan/2020/01/09/ny-umferdalog-okumenn-fa-hradasekt-og-geta-misst-bilprofid-fyrir-ad-keyra-20-km-klst/ Á Siglufirði: http://www.siglo.is/is/frettir/aminning-til-vegfarenda Á Ísafirðir: http://www.bb.is/2020/01/vistgotur-10-km-hradi-a-klukkustund/ Í Hafnarfirði: https://www.fjardarfrettir.is/frettir/nu-ma-adeins-aka-a-10-km-hrada-a-strandgotu Vopnafjörður: https://www.vopnafjardarhreppur.is/Frettir/nanar/43220/15-kilometra-hamarkshradi-a-skolasvaedinu kveðja Árni mið., 22. jan. 2020 kl. 09:09 skrifaði Jóhannes Birgir Jensson : > Ný umferðarlög tóku gildi 1. janúar, þar segir: > > https://www.althingi.is/lagas/nuna/2019077.html#G9 > *9. gr.* *Vistgata.* > Um vistgötu ber að aka hægt og eigi hraðar en 10 km á klst. Heimilt er að > dveljast og vera að leik á vistgötu. Ökumaður skal sýna gangandi vegfaranda > sérstaka tillitssemi og víkja fyrir honum. > > Var einhver með lista yfir löglegar vistgötur (ekki óformlegar) ? > > --Jói / Stalfur > ___ > Talk-is mailing list > Talk-is@openstreetmap.org > https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is > -- Árni Davíðsson arni...@gmail.com ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
Re: [Talk-is] Röng rötun í strætó appinu
Sæl Jón Gunnar Pálsson hefur verið mjög áhugasamur og sent mér endurtekið pósta um rötun í Strætó appinu. Hann hefur lika sent Svavari póst. Hann virðist hafa áhuga á að hjálpa til við að laga þessa rötun fyrir strætó og gæti mögulega tekið þátt í grunnvinnunni við OSM. Stendur til að boða einhvern fund á næstunni í félaginu sem hann gæti verið boðið á? Ef ekki gæti ég staðið fyrir minni fundi t.d. á kaffihúsi til að ræða málin. Munduð þið vera tilbúnir að hitta hann? Þið þekkið þetta eiginlega mun betur en ég. Mér finnst lílka vanta svör við : 1) Hvaða fyrirtæki sér um appið hjá Strætó. Mér sýnist lítið þýða að ræða við strætó beint um þessi mál. 2) Var ekki búið að færa inn stígagögn frá Garðabæ í OSM? kveðja Árni Davíðsson Þann 28. ágúst 2017 kl. 08:40 skrifaði Morten Lange <morten...@yahoo.com>: > Hæ > > Áhugavert. Mín snöggviðbrögð: > Kortið er ábótavant þarna, en verra er að rötunarvélin virðist haldin > þeirri misskilningi að ekki mega ganga eftir götum. > > Hæðarbyggð 7/9 : Hér er í þokkabót um götu að ræða sem er merkt (tögguð) > residential :-) > (Og svo er þetta nálægt enda botnlanga í ofanálag.) > > Annað mál er að auðvelt er að laga einstaka staði í OSM, gefið að einhver > staðfesti "ground truth". Framlengja gangstétta og stíga. > Eða hreinlega bæta við óformleg tenging (slóð sem sést á grasi etc) > highway=path, informal=yes, visibility=good eða álíka > > En aðalmálið í stærri myndinni er að laga rötunarvélina. Gera ráð fyrri að > hægt sé að fara af gangstétt / footway og út á götu, amk húsagötur og > "sveitavegi" > > -- > Regards / Kveðja / Hilsen Morten Lange > > > -- > *From:* Arni Davidsson <arni...@gmail.com> > *To:* Jóhannes Birgir Jensson <j...@betra.is>; Svavar Kjarrval < > sva...@kjarrval.is>; Morten Lange <morten...@yahoo.com> > *Sent:* Monday, 28 August 2017, 1:25 > *Subject:* Röng rötun í strætó appinu > > Sælir > > Ég fékk eftirfarandi póst vegna rangrar rötunar sem strætó appið gefur. > Það virðist vera að nota Open street map. > > Sæll Ég hef sent póst á fulltrúa Garðabæjar, OSM og strætó. Engin viðbrögð > hafa verið. Þú getur fengið afrit af þeim pósti. Þar er stungið upp á að > ræða hvað sé hægt að bæta við Karlabrautina. Garðabær skipuleggur > göngustíga, OSM setur þá inn í upplýsingakerfi sem strætó notar og strætó > ber ábyrð á að tölvan skili réttum upplýsingum. Skoðum aðeins að fara frá > Hæðarbyggð 9 að Ásgarði. Ef þú skoðar kort frá OSM, sést að enginn > göngustígur er milli Hæðarbyggðar 9 og 7. Því er farin lengri leið. Er hægt > að laga þetta með því að framlengja stíginn milli 9 og 7? Ef Garðabær segir > að þar sé göngustígur, þarf OSM að merkja hann inn. Annars ætti kannski að > "búa til" göngustíg þar á milli? Skoðum næst ferð frá Furulundi 9 að > Ásgarði. Ekki er hægt að fara yfir merktan göngustíg milli biðstöðvanna > Heiðarlundur og Furulundur. Í lokin er farið upp Hæðarbyggðina og er gengið > annað hvort milli Hæðarbyggðar 5 eða 9 að Hæðarbyggð 7. En íbúar > Hæðarbyggðar 5 og 9 geta ekki notað þessa gönguleið. Allir þrír þurfa að > skoða þetta. Ég vil að þú takir þá með sem þú telur hæfasta. Ekkert > skilyrði er að ég sé í þessum hóp. Ætti þetta að vera afmarkað verkefni, > eða hluti af öllu, sem á að ræða um? Ætti hópurinn að hittast fyrir fund > með strætó? Því næst yrði boðaður fundur með strætó. Hvað ætti fundarefnið > að vera? Kveðja Jón Gunnar Pálsson > > > Eru einhverjar skýringar á því hversvegna þetta er svona? Veit einhver > hvaða fyrirtæki það er sem býr til strætó appið? > > kveðja > Árni Davíðsson > > > > -- > Árni Davíðsson > arni...@gmail.com > > > -- Árni Davíðsson arni...@gmail.com ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
Re: [Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi
ekki með því að rengja rétt gögn. Sama gildir ef eitthvað kemur ljótt út á korti. OpenStreetMap verkefnið gengur aðallega út á gögnin en ekki hvernig þau eru túlkuð nema af afar litlu leiti. Mín tillaga undir þessum kringumstæðum er að vinna í að bæta þveranir og taka umræðuna varðandi að breyta highway=footway í highway=path. Það tekur auðvitað einhverja vinnu í upphafi að framkvæma þetta en eitthvað sem mun þurfa að gera að endingu. Með kveðju, Svavar Kjarrval On 21/08/14 10:10, Arni Davidsson wrote: Hæ Já Bristol á Englandi. Mér sýnist þetta snúast um magn af gögnum. Það eru lítil gögn í Bristol og þeir fáu stígar sem eru teiknaðir eru einfaldlega tengdir við götu (og gert ráð fyrir gangstéttum við þær) og svo er rútað eftir götunni fyrir gangandi. Stígurinn í þessu tilviki er ekki með bicycle=yes og því ættu hjól að fara eftir götu skv. þessu: Rútað fyrir hjól http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.583334,51.466187end=-2.583152,51.46466pref=Bicyclelang=denoMotorways=falsenoTollways=false Rútað fyrir gangandi http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.583334,51.466187end=-2.583152,51.46466pref=Pedestrianlang=ennoMotorways=falsenoTollways=false Hér er svo annar staður með stíg merktan bicycle=yes og rútað fyrir gangandi: http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.5838582,51.4671268end=-2.5810258,51.4675613pref=Pedestrianlang=ennoMotorways=falsenoTollways=false og hjólandi: http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.5838582,51.4671268end=-2.5810258,51.4675613pref=Bicyclelang=ennoMotorways=falsenoTollways=false Mér sýnist að við þurfum líklega að: 1. Fyrir gangandi. Annaðhvort að nota merktar gangstéttir fyrir gangandi og tengja þá allar gangstéttir yfir götur *eða* að eyða út gangstéttum og rúta eftir götum (þar sem eru gangstéttir). (Í því tilviki væri hægt að halda inni upplýsingum með því að nota sidewalk=both/left/right/none sem tag við highway.) 2. Fyrir gangandi. Láta þá stíga sem eru nauðsynlegir og eru ekki við götu halda sér og tengjast við götu (ef við eyðum gangstéttum) eða við gangstéttir (ef við höldum gangstéttum og tengjum þær allar yfir götur). 3. Fyrir hjólandi. Rúta eftir götum að jafnaði en setja bicycle=yes við þá stíga og gangstéttir (ef við höldum þeim) sem eru nauðsynlegir og eðlilegir sem tengingar fyrir reiðhjól. Sérstakir hjólastígar eru eðlilegur hluti af leiðum. Hvað finnst ykkur vera eðlilegasta og einfaldasta leiðin? Eyða gangstéttum eða tengja þær yfir götur? kveðja Árni Davíðsson 2014-08-21 0:16 GMT+00:00 Svavar Kjarrval sva...@kjarrval.is: Hæ. Bristol á Englandi? En annars fæ ég þetta til að virka á openrouteservice.org í Reykjavík fyrir fótgangandi og hjólandi. Hér er hjóladæmi í Breiðholtinu þar sem búið var að tengja þveranir á sínum tíma: http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.8173057,64.1006776end=-21.8241862,64.1000975pref=Bicyclelang=ennoMotorways=falsenoTollways=false Leiðin gæti þó orðið styttri með meiri gögnum á svæðinu en hér er greinilegt að beintengdu stígarnir eru nýttir eftir því sem kostur er. Með kveðju, Svavar Kjarrval On 16/08/14 01:06, arni...@gmail.com wrote: Það sem mér finnst athyglisvert með gögnin frá t.d. Bristol er að routing virkar þrátt fyrir að hvorki gangstéttir né þveranir séu skráðar. Hversvegna virkar það þar en ekki hjá okkur? Erum við að gera málið alltof flókið? Er hægt að skýra þennan mun? Kveðja Árni Davíðsson On 15.8.2014, at 22:11, Svavar Kjarrval sva...@kjarrval.is wrote: Hæ. Gallinn við stígagögnin frá Reykjavíkurborg er að þau eru frekar teiknuð upp á útlitið en routing. Fyrir okkur var þetta auðvitað ekki ákjósanlegasta staðan. Við fengum hins vegar nokkuð tæmandi safn yfir stíga, jafnvel stíga sem við myndum líklegast ekki fá af loftmyndunum einum saman. Hvað varðar routing gæti þetta verið bjarnargreiði en nokkuð góður greiði þegar kemur að því að vita hvar stígar eru og hvar þeir liggja. Með Laugaveginn tek ég þetta algerlega á mig, sérstaklega þar sem ég á heima þar rétt hjá og hefði auðvitað átt að hafa klárað þetta þar fyrir löngu. Okkar vantar smá átak til þess að skrá betur gangbrautir og aðrar þveranir yfir götur. Tók sjálfur einhver þannig svæði á sínum tíma en hef því miður fært áhersluna annað innan OSM. Hef samt tekið nokkuð margar GPS taggaðar ljósmyndir af slíkum þverunum í einhverjum gönguferðanna sem ég hef farið. Ef einhver hefur áhuga á að skrá þetta í massavís, þá get ég tekið þær myndir saman og sent viðkomandi. Margar þverananna sem myndir eru af gætu þó verið augljósar út frá loftmyndum. Hvaða svæði finnst ykkur að ættu að vera í forgangi þegar bæta á við þessum tengingum? Með kveðju, Svavar Kjarrval On 11/08/14 16:26, Arni Davidsson wrote: Sæl Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega á íslensku. Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í
[Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og hjólandi
Sæl Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega á íslensku. Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open street map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á gögnum yfir stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum virðast stígar oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki tengdir. Það er fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að tengja stígana. Sjá t.d. það sem gerist hér að neðan í ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap og í borgarvefsjá: http://is.ridethecity.com/#3655489 http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141layers=C http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825 Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki verið hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en spurningin er hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér í að tengja stíga við götur og yfir götur þar sem um þverun er að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af þverunum og meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi koma ekki fram í Openstreetmap. Einhverjar snjalla hugmyndir? kveðja Árni Davíðsson -- Árni Davíðsson arni...@gmail.com ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
Re: [Talk-is] Iceland Illustrated
Works for me on Ubuntu 10.04 with Firefox (upgraded). kv. Árni Davíðsson On 26 April 2012 22:01, Thorir Jonsson thorir...@gmail.com wrote: Works fine for me on firefox in mint 12 Kv. Þórir Már On Thu, Apr 26, 2012 at 3:25 PM, Morten Lange morten...@yahoo.com wrote: Hi, I see no map ( Opera on Ubuntu with Flash plugin) -- Regards / Kveðja / Hilsen Morten Lange, Reykjavík -- *From:* Björgvin Ragnarsson nifgr...@gmail.com *To:* OpenStreetMap in Iceland talk-is@openstreetmap.org *Sent:* Thursday, 26 April 2012, 14:15 *Subject:* [Talk-is] Iceland Illustrated I just came across this cool looking web-map: http://icelandillustrated.com/ have a good day! Björgvin Ragnarsson ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is -- Árni Davíðsson arni...@gmail.com ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
[Talk-is] Hjólavefsjáin
Sæl Nú er lén hjólavefssjár (http://www.hjolavefsja.is/) óvirkt. Ætlaði Reykjavíkurborg ekki að borga fyrir lénið og halda því úti? Hvernig var samkomulagið? Við hjá LHM komum ekki að þessu en það er bagalegt ef lénsnafnið liggur niðri því það er vísað á það. Sjálf vefsjáin virkar að mörgu leyti vel en hún er á léninu: http://is.ridethecity.com/iceland. Það er helst öruggari leið sem finnir soldið skrítnar leiðir. öruggari leið: http://is.ridethecity.com/iceland#1606113 örugg leið: http://is.ridethecity.com/iceland#1606114 bein leið: http://is.ridethecity.com/iceland#1606115 Vonandi leysið þið þetta með lénið sem fyrst. kveðja -- Árni Davíðsson formaður Landssamtök hjólreiðamanna www.LHM.is l...@lhm.is arni...@gmail.com gsm. 862 9247 ___ Talk-is mailing list Talk-is@openstreetmap.org http://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
Re: [Talk-is] Er að skoða hjólastígana
Sæll Karl Ég væri til í að hittast og skoða þetta saman. Til dæmis gæti ég komið eftir kl. 15 á morgun eða á fimmtudaginn. Einu raunverulegu hjólastígarnir eru á köflum frá Ægisíðu inn eftir Fossvogsdal, og í Lönguhlíð og um 200 m bútur á Laugavegi. Allir aðrir stígar eru blandaðir göngu og hjólreiðastígar og þar á ekki að vera nein miðlína eða 1+2 lína (hjólarein eins og þú kallar það á Sæbrautinni). Reykjavíkurborg er búin að gefa það út að þeir séu hættir að skipta þessum blönduðu stígum upp með línu í svo kallaða 1+2 stíga. Borgin tímir hinsvegar ekki að afmá þær þannig að þær verða lengi að hverfa. Eftir það ætti venjuleg hægri umferð að gilda á stígunum með framúrtöku vinstra megin ef aðstæður leyfa. Samkvæmt umferðarlögum eiga gangandi vegfarendur forgang fram yfir hjólandi á stígum og gangstéttum með blandaðri umferð sbr. 4 mgr. 39. gr.: Heimilt er að hjóla á gangstétt og gangstíg, enda valdi það ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum. Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja fyrir gangandi vegfarendum. Það er með þessu undanþáguákvæði sem hjólreiðar eru leyfðar á stígum og gangstéttum. Þessir blönduðu göngu og hjólreiðastígar og gangstéttir sem eru merktar á hjólakorti Reykjavíkurborgar og á höfuðborgarsvæðinu eru misjafnir. Sumstaðar eru þeir ágætir, einkum þar sem stígsýnin er góð og umferð gangandi er lítil. Aðrir henta illa til hjólreiða, a.m.k. á venjulegum hraða. Það er spurning hvernig á að merkja þessa stíga. Annaðhvort ættu þeir að vera Tag:highway=footway with http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:bicycle%3Dyes Tag:bicycle=yes http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:bicycle%3Dyes sem rímar betur við stöðu þeirra skv. umferðarlögum eða þá með: Tag:highway=path http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:highway%3Dpath with Tag:bicycle=yes http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:bicycle%3Dyes and Tag:foot=yes http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:foot%3Dyes. En sem fyrr segir eiga blönduðu stígarnir ekki að vera með línu sem skiptir þeim í framtíðinni. * *Raunverulegir hjólastígar ættu að vera með: Tag:highway=cyclewayhttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:highway%3Dcyclewayen spurning með : Tag:foot=designatedhttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:foot%3Ddesignated and Tag:segregated=yeshttp://wiki.openstreetmap.org/w/index.php?title=Tag:segregated%3Dyesaction=editredlink=1. * *Hver útkoman er í hjólavefsjánni m.v. þessar merkingar veit ég ekki. Hugsanlega þarf að taka tillit til þess? Til viðbótar við stígana eru síðan hjólavísar á götum. Þeir eru á Suðurgötu sunnan Hringbrautar, Einarsnesi, Langholtsvegi og Laugarásvegi. Suðurgata norðan Hringbrautar er með hjólarein í norðurátt gegn einstefnu bíla og hjólavísa í suðurátt á bílaakreininni. kveðja Árni Davíðsson formaður Landssamtaka hjólreiðamanna www.LHM.is s: 862 9247 * * 2011/1/2 Karl Georg ka...@ekkert.org Fysti pósturinn minn virðist ekki hafa skilað sér enn hann má sjá hér að neðan, og reyndar í fyrra svari mínu líka: Kv. Kalli 2011/1/2 Kalli G ka...@ekkert.orgka...@ekkert.org *Hæ,* *Mig langar svolítið að yfirfara hjólastígana með því að leiðarljósi að festa saman leiðir sem sem virka ekki í hjólavefsjá vegna þess að endar ná ekki saman. Fysta skref mitt er að fara yfir obinbert hjólakort reykjavíkurborgar,sjá:* http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3546/5704_view-1026/ http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3546/5704_view-1026/ Heildarkort af Reykjavík 2010 (PDF útgáfa - 2,7 MB)http://www.reykjavik.is/Portaldata/1/Resources/framkvaemdasvid/gongu_og_hjolastigar/hjolreidakort-rvk-2010.pdf *Markmið mitt er að fullvissa mig um að ofangreint grunn net verði heilt. * Ég mun notast við þessar reglur sem eru hér: http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways Rules for cycleways in Reykjavík - When the bike symbol is present, these are tagged as Tag:highway=cyclewayhttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:highway%3Dcycleway and also have Tag:foot=designatedhttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:foot%3Ddesignated and Tag:segregated=yeshttp://wiki.openstreetmap.org/w/index.php?title=Tag:segregated%3Dyesaction=editredlink=1. These paths will be rendered with blue line on the slippymap. - Where there is no sign on the road showing that bikes are permitted, use Tag:highway=pathhttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:highway%3Dpath with Tag:bicycle=yeshttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:bicycle%3Dyes and Tag:foot=yes http://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:foot%3Dyes. These will be rendered with a red line. - It is also useful to have Tag:surface=pavedhttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:surface%3Dpaved, and to mark bridges and tunnels with Tag:bridge=yeshttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:bridge%3Dyes and Tag:tunnel=yeshttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/Tag:tunnel%3Dyes . Það er samt í smá
Re: [Talk-is] Varðandi merkingar á hjólaleiðum
2010/8/29 Karl Georg ka...@ekkert.org Á meðan Routing tólin Gúddera síga taggaða highway=path sem hjólaleið þá er það fín skilgreining á milli hjólreiðabrautar og hjólaleiðar í almenna stíga/götu kerfinu. Það hlýtur að vera mikilvægt að setja footway tag á almenna stíga þar sem það á við. Skokkar og göngufólk hljóta að njóta góðs af því. Ég er frekar sáttur við þessar skilgreiningar á stígum sem fram hafa komið. Væri ekki ráð að búa til Presets fyrir þessar skilgreiningar ásamt wikisíðu með ljósmyndum og guidelines af hvernig ætti að tagga leiðirnar. Nöfn á presetin gæti hljómað svona: (Ég tek það fram að ég er glænýr notandi og þekki ekki virkni presets fullkomnlega) Stígur,malbik Stígur Möl (gæti átt við heiðmörk og fl útivistarsvæði) Hjólreiðabraut Gangstéttir Hjólreiðarein Hjólavísar Persónulega skil ég ekki merkingu orðsins Hjólavísir en það er væntanlega bara orðaforðaskortur hjá mér. Mér dettur í hug Almenn akbraut ef að ég túlka þessa skilgreiningu rétt. Er þetta ekki basicly þeir staðir þar sem hjólreiðamenn kjósa eða þurfa að hjóla á götunni? Svona reiðhjólaumferð eins og hefur td. stóraukist við Hafnarfjarðarveginn Ásamt ýmissa tenginga á milli annara hjólaleiða í gegnum íbúðargötur, yfir bílastæði, gatnamót og fl. Hjólavísar eru útskýrðir hér: http://www.lhm.is/lhm/pistlar/299-hjr-reykjavr- og hér http://www.lhm.is/lhm/pistlar/236-hjolavisar-nyjung-a-goetum-reykjavikur Þeir eru nú komnir á Einarsnesi, Suðurgötu sunnan Hringbrautar, Lanholtsvegi og Laugarásvegi og nú síðast við Hverfisgötuna í tilraunaverkefni umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. Er hægt að skilgreina götur sem þegar eru inni sem hjólavísa? Eða eru þetta leiðir sem við ættum að teikna upp á nýtt ? Skiptir það máli þegar það kemur að virkni hjolavefsjáa? það væri ekki vitlaust að finna svo nokkur vel valin aukatögg til að auðvelda áframhaldandi úrvinnslu (td. fyrir hjólavefsjá) Ég veit ekki hvernig þessar vefsjár sem eru að routa hjólaleiðir skilgreina öryggi leiðanna geta tögg eða stöðluð preset hjápað þar ? Það væri kanski hægt að gefa leiðunum einkun eftir hversu hjólavænar þær eru (A leið B leið og C leið?). Aðkoma að gatnamótum, bílaumferð, stígabreidd, útsýni og brekkur geta spilað þarna inní. Ég útbjó drög að flokkun gatna með tilliti til þæginda til hjólreiða í 6 flokka. Ef hægt væri að tagga götur í flokka A til F eftir því hversu þægilegt er að hjóla þær yrði til einskonar gæðaflokkun hjólreiðaleiða eftir götum. Það væri þá líka hægt að setja einhverja flokkun við gangstéttir, útivistarstíga, hjólreiðabrautir, hjólreiðareinar og götur með hjólavísa. Þá mætti líka ímynda sér að hægt væri að flokka leiðirnar eftir breidd stíga og hættum sem hafa verið færðar innn við þá, s.s. blindhorn, blindbeygjur, hálkustaði o.s.frv. Drög að flokkun gatna: A. flokkur. Þægileg til hjólreiða. Hæg umferð ca. 30 km. Lítil umferð. Ráðandi staða þægileg. Akrein 3,5 m breið. Dæmi botnlangar. B. flokkur. Þægileg til hjólreiða en meiri umferð og ráðandi staða óþægilegri. Hæg umferð ca. 30 km. Meiri umferð. Þarf oft að taka ráðandi stöðu í umferð vegna aðstæðna (þrengingar, hliðargötur, útkeyrslur, bílastæði í götu). Akrein 3,5 m breið. Dæmi Hverfisgata. C. flokkur. Þægileg til hjólreiða en meiri umferð og meiri hraði. Ökuhraði um 50 km. Breidd götu leyfir víkjandi stöðu hjólreiðamanns og framúrakstur bíla án þess að þeir fari yfir miðlínu eða þá að umferð er lítil. Akrein yfir 4,2 m breið. Dæmi Suðurgata sunnan Hringbrautar hæri akrein. Kársnesbraut í austurátt. D. flokkur. Minna þægileg til hjólreiða (einkum á annatíma). Ökuhraði um 50 km. Breidd götu leyfir ekki framúrakstur bíla án þess að þeir fari yfir miðlínu og umferð er nokkuð þétt. Akrein 3,5 m breið. Dæmi Bústaðavegur. E. flokkur. Þægileg til hjólreiða en hentar frekar þjálfuðum hjólreiðamönnum. Hröð umferð 60 km og yfir. Bílar geta tekið framúr án þess að fara yfir akreina línu. Fáar að- og fráreinar og/eða fullnægjandi hönnun og pláss. Breidd akreinar 4,2-4,8 m eða fullnægjandi vegöxl eða öryggissvæði. Dæmi Reykjanesbraut endurbyggð sunnan/vestan Hafnarfjarðar. F. flokkur. Frekar óþægileg til hjólreiða en getur hentað þjálfuðum hjólreiðamönnum. Hröð umferð 60 km og yfir. Bílar geta ekki tekið framúr án þess að fara yfir akreina línu. Margar að- og fráreinar og/eða ekki fullnægjandi hönnun og pláss. Breidd akreinar 3,5 m og ekki fullnægjandi vegöxl eða öryggissvæði. Dæmi Miklabraut, Kringlumýrarbraut o.fl. kveðja Árni 2010/8/28 Ævar Arnfjörð Bjarmason ava...@gmail.com ava...@gmail.comava...@gmail.com ava...@gmail.com 2010/8/27 Arni Davidsson arni...@gmail.com arni...@gmail.comarni...@gmail.com arni...@gmail.com Varðandi merkingar á hjólaleiðum. Á vefnum:http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cyclewayshttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cyclewayshttp://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways http://wiki.openstreetmap.org/wiki