Ég er búinn að vera að gera skurk í þessu og þegar RideTheCity uppfærir sig sést að mikið af gangstéttum hverfa sem hjólastígar.

Ég er líka búinn að vera að reyna að skilgreina sérstaka hjólaleiðir (Relation Cycle Route) og afraksturinn sést betur á OpenCycleMap sem uppfærir kortið vikulega frá OSM. Nýjar leiðir frá mér þarna eru Kópavogsstígur, Kársnesstígur og svo Elliðaárdalsstígarnir.

http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000

Ég áleit sem svo að best sé að taka bicycle=yes af öllum foot path og svo bætum við þeim á það sem við teldum vera hjólastíga, ekki gangstéttir nema þær geta hins vegar verið hluti hjólaleiða.

Þeir sem muna hvernig OpenCycleMap leit út áður muna kannski að það var eiginlega allt í bláum strikum á öllum gangstéttum sem flækti málin frekar en einfaldaði.

Nú síðast var ég að skoða tólið sem Strava var að búa til fyrir OSM, þar sem þeir nota hlaupa- og hjólagögnin til að hjálpa OSM að nálgast betur leiðir. Það verður enginn svikinn af þessum fyrirlestri og tólið sem þeir benda á þar svínvirkar, ég var að prófa það. http://stateofthemap.us/session/slide/

Ég sakna svo leiða sem þekkjast sem á meðal hjólreiðamanna, til dæmis rakst ég á feril frá fyrrum vinnufélaga sem fór Jaðarinn sagði hann.

Það er mýgrútur af tækifærum þarna til að laga og það eru til fleiri tól en RideTheCity sem virðast eitthvað rólegir í að updeita.



Þann 11.8.2014 16:26, skrifaði Arni Davidsson:
Sæl

Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega á íslensku.

Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open street map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á gögnum yfir stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum virðast stígar oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki tengdir. Það er fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að tengja stígana. Sjá t.d. það sem gerist hér að neðan í ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap og í borgarvefsjá:

http://is.ridethecity.com/#3655489
http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825

Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki verið hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en spurningin er hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér í að tengja stíga við götur og yfir götur þar sem um þverun er að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af þverunum og meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi koma ekki fram í Openstreetmap.

Einhverjar snjalla hugmyndir?

kveðja
Árni Davíðsson



--
Árni Davíðsson
arni...@gmail.com <mailto:arni...@gmail.com>


_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to