Takk fyrir þetta.

Er lausnin þá að láta hjólaleiðir liggja um vegi og um sérstaka hjólastíga
en ef slíkar leiðir eru ekki finnanlegar þá er sett bicycle=yes á foot path
líka til að tengja?

Ég sendi póst á Ride the city og spurði hversu oft þeir uppfæra gögnin.

Er hægt að benda á önnur Open street map kort sem uppfæra oftar en Ride the
city og hafa svipaða notkunarmöguleika.
http://openrouteservice.org/?lang=en er eitt en er ekki alveg jafn liðlegt
að færa upphafs- og endastað.

kveðja
Árni







2014-08-11 19:25 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <j...@betra.is>:

>  Ég er búinn að vera að gera skurk í þessu og þegar RideTheCity uppfærir
> sig sést að mikið af gangstéttum hverfa sem hjólastígar.
>
> Ég er líka búinn að vera að reyna að skilgreina sérstaka hjólaleiðir
> (Relation Cycle Route) og afraksturinn sést betur á OpenCycleMap sem
> uppfærir kortið vikulega frá OSM. Nýjar leiðir frá mér þarna eru
> Kópavogsstígur, Kársnesstígur og svo Elliðaárdalsstígarnir.
>
> http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000
>
> Ég áleit sem svo að best sé að taka bicycle=yes af öllum foot path og svo
> bætum við þeim á það sem við teldum vera hjólastíga, ekki gangstéttir nema
> þær geta hins vegar verið hluti hjólaleiða.
>
> Þeir sem muna hvernig OpenCycleMap leit út áður muna kannski að það var
> eiginlega allt í bláum strikum á öllum gangstéttum sem flækti málin frekar
> en einfaldaði.
>
> Nú síðast var ég að skoða tólið sem Strava var að búa til fyrir OSM, þar
> sem þeir nota hlaupa- og hjólagögnin til að hjálpa OSM að nálgast betur
> leiðir. Það verður enginn svikinn af þessum fyrirlestri og tólið sem þeir
> benda á þar svínvirkar, ég var að prófa það.
> http://stateofthemap.us/session/slide/
>
> Ég sakna svo leiða sem þekkjast sem á meðal hjólreiðamanna, til dæmis
> rakst ég á feril frá fyrrum vinnufélaga sem fór Jaðarinn sagði hann.
>
> Það er mýgrútur af tækifærum þarna til að laga og það eru til fleiri tól
> en RideTheCity sem virðast eitthvað rólegir í að updeita.
>
>
>
>  Þann 11.8.2014 16:26, skrifaði Arni Davidsson:
>
>  Sæl
>
>  Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega á íslensku.
>
>  Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir gangandi og
> hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open street map. Ástæðan er að hluta
> til innfærsla á gögnum yfir stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum
> virðast stígar oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar
> leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki tengdir. Það er
> fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að tengja stígana. Sjá t.d. það sem
> gerist hér að neðan í ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap
> og í borgarvefsjá:
>
> http://is.ridethecity.com/#3655489
> http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
>
> http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
>
>  Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki verið
> hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en spurningin er hvernig á
> að laga þetta? Á bara að hella sér í að tengja stíga við götur og yfir
> götur þar sem um þverun er að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af
> þverunum og meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi koma
> ekki fram í Openstreetmap.
>
>  Einhverjar snjalla hugmyndir?
>
>  kveðja
>  Árni Davíðsson
>
>
>
> --
> Árni Davíðsson
> arni...@gmail.com
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing 
> listTalk-is@openstreetmap.orghttps://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>
>
> _______________________________________________
> Talk-is mailing list
> Talk-is@openstreetmap.org
> https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
>
>


-- 
Árni Davíðsson
arni...@gmail.com
_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to