Þess má geta að RideTheCity er með mjög gömul gögn. Arnarsmárinn heima er bara hálfur á kortinu og ég lagaði hann fyrir meira en ári.

Þann 14.08.2014 11:00, Arni Davidsson reit:
Þar sem ég er varaformaður Landssamtaka hjólreiðamanna og Morten
er formaður ætti það að vera hæg heimatökin að segja hvað
hjólreiðafólki finnst vera aðalleiðir og hvað tengileiðir.
Strava virðist líka koma að góðu gagni þar eins og þú bendir
á. Það hjálpar til að finna bestu leiðirnar þegar farið er um
lengri veg.

Vandinn er kannski samt meiri en svo. Það vantar kortafólk til að
breyta kortinu og að það sé gert með samræmdum hætti af þeim
sem eru að vinna í því. Nú er ég t.d. aðeins búin að vera að
vinna í kortinu (samt mjög lítið) með því að segja bicycle=yes
á göngustíga til að bæta leiðaval en þú ert væntanlega búin
að nema það úr gildi (ég er ekkert sár tek það fram). Ég
væri til í að vinna meira í þessu og reyna að mennta fleiri til
að gera það en þá þarf að vera skýrt hvernig verkið á að
vera unnið. Markmiðið er að sýna hjólaleiðir á Open street map
og að leiðaleit/rútun virki eins og það gerir þegar reyndur
hjólreiðamaður finnur stystu og bestu leiðina milli tveggja
staða.

Við getum heldur ekki ákveðið hvað eru réttar leiðir og hvað
tengileiðir fyrir alla þótt það sé rétt að skilgreina þær
eins og þú hefur verið að gera með "Relation cycle route". Það
þarf líka að vera hægt að finna réttar leiðir á styttri
vegalengdum. Það virðast að einhverju leyti háð
vefsíðu/rútnarvél en sennilega er mest um það að einhverjar
tengingar vantar og núna að tengingar vantar um gangstéttir sem
samkvæmt hefð eru notuð af hjólreiðafólki til að hjóla á. Ég
ætla að sýna dæmi frá tvemur mismunandi leiðaleitavélum úr
Hlíðunum:

http://is.ridethecity.com/iceland#3661323 [12]
Hjólandi og gangandi mynd úr http://openrouteservice.org/?lang=en
[6]

Þarna vantar væntanlega að skilgreina gangstéttir sem bicycle=yes
því ekki getum við sagt að leyfilegt sé að hjóla á móti
einstefnu þótt það sé það sem flestir reyndir hjólreiðamenn
gera vegna þess að þannig eru þeir öruggastir í umferðinni.
Það væri þá hægt að segja t.d. að aðeins ein gangstétt sé
bicycle=yes í gegnum Hliðarnar til að opna þar tengingu (þótt
hjóla megi á þeim öllum). Reyndar vantar líka að tengja
gangbrautir og þveranir yfir Lönguhlíð til að þetta virki sbr.
mynd fyrir gangandi. Það þarf síðan líka að hugsa leiðaleitina
fyrir gangandi sem er mjög háð því að þveranir séu yfir
götur. Varðandi gangstéttagögnin væri kannski fljótlegast að
skilgreina götur með einhverju tagi sem segir að gangstétt sé
meðfram götu öðru megin eða báðu megin og láta
gangstéttagögnin lönd og leið??? Þau virðast skapa fleiri
vandamál en þau leysa.

Þannig er fullt af tengingum sem vantar til að leiðaleit/rútun
virki sem skyldi. Það er samt jákvætt hvað gengur vel að finna
staði núna því flest húsnúmer og götur eru komnar inn þannig
að fólk ætti auðveldlega að geta fundið þá staði sem það
ætlar á. Flest allir stígar og gangstéttir eru líka á kortinu
þannig að oft ætti það að geta áttað sig á betri leiðum
þegar leiðaleitin virkar ekki sem skyldi.

kveðja

Árni

2014-08-13 20:19 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <j...@betra.is>:

Svo er Strava með annað sniðugt - það er hægt að tilkynna
vandamál í Strava og þau birtast hér.


http://labs.strava.com/routing-errors/#10000000/12/-21.88528/64.13128
[2]

Þann 13.8.2014 18:03, skrifaði Jóhannes Birgir Jensson:

Sýnist að það séu 46 manneskjur og einn botti (archive) á
póstlistanum.

Ég var ekki búinn að skoða þetta á wiki.

Það væri frábært að fá hjólaleiðahópinn í gang, ef það
væri hægt að setjast niður með hjólafólki (eru ekki samtök
hjólafólks nýstofnuð) og fara yfir hvernig almennt mat allra er
á hvað teljist "stofnbrautir" í hjólaleiðum og svo hvað eru
hliðarbrautir (göngustígar sem tengja saman og þess háttar).

Ef að slíkur hjólahópur getur náð lendingu þá er frekar
einfalt að koma því á kortið.

Þann 13.8.2014 16:29, skrifaði Arni Davidsson:

Þurfum við ekki að uppfæra þetta skjal með nýjustu
upplýsingum:

http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways [3]

Hjólaleiðahópur Hliðskjálfs hefur ekkert starfað ennþá.
Hverjir mundu vilja vera með í honum?

Mig mundi langa til að hafa fund í byrjun september og fara yfir
álitaefni og stilla saman strengi svo við séum á sömu
blaðsíðu og gerum hlutina á svipaðan hátt. Þá væri hægt
að uppfæra wiki skjalið með nákvæmari leiðbeiningum í
kjölfarið.

Sem sagt hverjir vilja vera með?

p.s. Hversu margir eru áskrifendur á talk.is [4]??

kveðja

Árni

2014-08-12 19:33 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <j...@betra.is>:

Já ég held, að svo stöddu, að þetta sé besta lausnin.
Pössum auðvitað upp á að allir sértækir hjólastígar séu
merktir inn sérstaklega.

http://cycle.travel/map [5] er nýtt dæmi með rútun, þeir hafa
ekki sett Ísland inn en það ætti að vera auðvelt - ég
ætlaði að hafa samband aftur við þá þegar
höfuðborgarsvæðið væri orðið aðeins betra.

Var að prófa hvernig rútunin virkar hjá þeim með því að
velja tvo staði á kortinu, fór fyrstu beygjurnar á hjólastíg,
svo vísað á umferðargötu, aftur á hjólastíg, götu og
endaði á hjólastíg.

--Jói

Þann 12.8.2014 15:31, skrifaði Arni Davidsson:

Takk fyrir þetta.

Er lausnin þá að láta hjólaleiðir liggja um vegi og um
sérstaka hjólastíga en ef slíkar leiðir eru ekki finnanlegar
þá er sett bicycle=yes á foot path líka til að tengja?

Ég sendi póst á Ride the city og spurði hversu oft þeir
uppfæra gögnin.

Er hægt að benda á önnur Open street map kort sem uppfæra
oftar en Ride the city og hafa svipaða notkunarmöguleika.
http://openrouteservice.org/?lang=en [6] er eitt en er ekki alveg
jafn liðlegt að færa upphafs- og endastað.

kveðja
Árni

2014-08-11 19:25 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <j...@betra.is>:

Ég er búinn að vera að gera skurk í þessu og þegar
RideTheCity uppfærir sig sést að mikið af gangstéttum hverfa
sem hjólastígar.

Ég er líka búinn að vera að reyna að skilgreina sérstaka
hjólaleiðir (Relation Cycle Route) og afraksturinn sést betur á
OpenCycleMap sem uppfærir kortið vikulega frá OSM. Nýjar leiðir
frá mér þarna eru Kópavogsstígur, Kársnesstígur og svo
Elliðaárdalsstígarnir.


http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000
[7]

Ég áleit sem svo að best sé að taka bicycle=yes af öllum foot
path og svo bætum við þeim á það sem við teldum vera
hjólastíga, ekki gangstéttir nema þær geta hins vegar verið
hluti hjólaleiða.

Þeir sem muna hvernig OpenCycleMap leit út áður muna kannski
að það var eiginlega allt í bláum strikum á öllum
gangstéttum sem flækti málin frekar en einfaldaði.

Nú síðast var ég að skoða tólið sem Strava var að búa til
fyrir OSM, þar sem þeir nota hlaupa- og hjólagögnin til að
hjálpa OSM að nálgast betur leiðir. Það verður enginn svikinn
af þessum fyrirlestri og tólið sem þeir benda á þar
svínvirkar, ég var að prófa það.
http://stateofthemap.us/session/slide/ [8]

Ég sakna svo leiða sem þekkjast sem á meðal hjólreiðamanna,
til dæmis rakst ég á feril frá fyrrum vinnufélaga sem fór
Jaðarinn sagði hann.

Það er mýgrútur af tækifærum þarna til að laga og það eru
til fleiri tól en RideTheCity sem virðast eitthvað rólegir í
að updeita.

Þann 11.8.2014 16:26, skrifaði Arni Davidsson:

Sæl

Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega
á íslensku.

Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing)
fyrir gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open
street map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á gögnum yfir
stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum virðast
stígar oft ekki tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar
leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki
tengdir. Það er fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að
tengja stígana. Sjá t.d. það sem gerist hér að neðan í
ridethecity og hvernig gögnin líta út í openstreetmap og í
borgarvefsjá:

http://is.ridethecity.com/#3655489 [9]
http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
[10]

http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
[11]

Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki
verið hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en
spurningin er hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér í
að tengja stíga við götur og yfir götur þar sem um þverun er
að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af þverunum
og meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á Laugavegi koma
ekki fram í Openstreetmap.

Einhverjar snjalla hugmyndir?

kveðja

Árni Davíðsson

--
Árni Davíðsson
arni...@gmail.com

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]

 --
 Árni Davíðsson
 arni...@gmail.com

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]

 _______________________________________________
 Talk-is mailing list
 Talk-is@openstreetmap.org
 https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]

 --
 Árni Davíðsson
 arni...@gmail.com

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]

_______________________________________________
 Talk-is mailing list
 Talk-is@openstreetmap.org
 https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is [1]

--
Árni Davíðsson
arni...@gmail.com


Links:
------
[1] https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is
[2] http://labs.strava.com/routing-errors/#10000000/12/-21.88528/64.13128
[3] http://wiki.openstreetmap.org/wiki/WikiProject_Iceland/Cycleways
[4] http://talk.is
[5] http://cycle.travel/map
[6] http://openrouteservice.org/?lang=en
[7]
http://opencyclemap.org/?zoom=12&amp;lat=64.12851&amp;lon=-21.89742&amp;layers=B0000
[8] http://stateofthemap.us/session/slide/
[9] http://is.ridethecity.com/#3655489
[10] http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&amp;layers=C
[11]
http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825
[12] http://is.ridethecity.com/iceland#3661323

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to