Já ég held, að svo stöddu, að þetta sé besta lausnin. Pössum auðvitað upp á að allir sértækir hjólastígar séu merktir inn sérstaklega.

http://cycle.travel/map er nýtt dæmi með rútun, þeir hafa ekki sett Ísland inn en það ætti að vera auðvelt - ég ætlaði að hafa samband aftur við þá þegar höfuðborgarsvæðið væri orðið aðeins betra.

Var að prófa hvernig rútunin virkar hjá þeim með því að velja tvo staði á kortinu, fór fyrstu beygjurnar á hjólastíg, svo vísað á umferðargötu, aftur á hjólastíg, götu og endaði á hjólastíg.

--Jói


Þann 12.8.2014 15:31, skrifaði Arni Davidsson:
Takk fyrir þetta.

Er lausnin þá að láta hjólaleiðir liggja um vegi og um sérstaka hjólastíga en ef slíkar leiðir eru ekki finnanlegar þá er sett bicycle=yes á foot path líka til að tengja?

Ég sendi póst á Ride the city og spurði hversu oft þeir uppfæra gögnin.

Er hægt að benda á önnur Open street map kort sem uppfæra oftar en Ride the city og hafa svipaða notkunarmöguleika. http://openrouteservice.org/?lang=en er eitt en er ekki alveg jafn liðlegt að færa upphafs- og endastað.

kveðja
Árni







2014-08-11 19:25 GMT+00:00 Jóhannes Birgir Jensson <j...@betra.is <mailto:j...@betra.is>>:

    Ég er búinn að vera að gera skurk í þessu og þegar RideTheCity
    uppfærir sig sést að mikið af gangstéttum hverfa sem hjólastígar.

    Ég er líka búinn að vera að reyna að skilgreina sérstaka
    hjólaleiðir (Relation Cycle Route) og afraksturinn sést betur á
    OpenCycleMap sem uppfærir kortið vikulega frá OSM. Nýjar leiðir
    frá mér þarna eru Kópavogsstígur, Kársnesstígur og svo
    Elliðaárdalsstígarnir.

    http://opencyclemap.org/?zoom=12&lat=64.12851&lon=-21.89742&layers=B0000

    Ég áleit sem svo að best sé að taka bicycle=yes af öllum foot path
    og svo bætum við þeim á það sem við teldum vera hjólastíga, ekki
    gangstéttir nema þær geta hins vegar verið hluti hjólaleiða.

    Þeir sem muna hvernig OpenCycleMap leit út áður muna kannski að
    það var eiginlega allt í bláum strikum á öllum gangstéttum sem
    flækti málin frekar en einfaldaði.

    Nú síðast var ég að skoða tólið sem Strava var að búa til fyrir
    OSM, þar sem þeir nota hlaupa- og hjólagögnin til að hjálpa OSM að
    nálgast betur leiðir. Það verður enginn svikinn af þessum
    fyrirlestri og tólið sem þeir benda á þar svínvirkar, ég var að
    prófa það. http://stateofthemap.us/session/slide/

    Ég sakna svo leiða sem þekkjast sem á meðal hjólreiðamanna, til
    dæmis rakst ég á feril frá fyrrum vinnufélaga sem fór Jaðarinn
    sagði hann.

    Það er mýgrútur af tækifærum þarna til að laga og það eru til
    fleiri tól en RideTheCity sem virðast eitthvað rólegir í að updeita.



    Þann 11.8.2014 16:26, skrifaði Arni Davidsson:
    Sæl

    Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja allavega á
    íslensku.

    Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing) fyrir
    gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í Open street
    map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á gögnum yfir stíga frá
    sveitarfélögunum því í þeim gögnum virðast stígar oft ekki
    tengdir yfir götur né við götu. Þannig virkar leiðavalið ekki
    vegna þess að stígar eru einfaldlega ekki tengdir. Það er
    fyrirsjáanlegt að það er talsverð vinna að tengja stígana. Sjá
    t.d. það sem gerist hér að neðan í ridethecity og hvernig gögnin
    líta út í openstreetmap og í borgarvefsjá:

    http://is.ridethecity.com/#3655489
    http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
    
http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825

    Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki verið
    hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en spurningin er
    hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér í að tengja stíga
    við götur og yfir götur þar sem um þverun er að ræða. Eins og þið
    sjáið í Hátúni er fullt af þverunum og meira að segja þveranir á
    gangbrautarljósum á Laugavegi koma ekki fram í Openstreetmap.

    Einhverjar snjalla hugmyndir?

    kveðja
    Árni Davíðsson



-- Árni Davíðsson
    arni...@gmail.com <mailto:arni...@gmail.com>


    _______________________________________________
    Talk-is mailing list
    Talk-is@openstreetmap.org  <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
    https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


    _______________________________________________
    Talk-is mailing list
    Talk-is@openstreetmap.org <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
    https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is




--
Árni Davíðsson
arni...@gmail.com <mailto:arni...@gmail.com>


_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to