3. Fyrir hjólandi. Rúta eftir götum að jafnaði en setja
bicycle=yes við þá stíga og gangstéttir (ef við höldum þeim)
sem eru nauðsynlegir og eðlilegir sem tengingar fyrir reiðhjól.
Sérstakir hjólastígar eru eðlilegur hluti af leiðum.

Hvað finnst ykkur vera eðlilegasta og einfaldasta leiðin? Eyða
gangstéttum eða tengja þær yfir götur?

Ég er á því að við höldum áfram því sem er að verða venja hjá okkur. Merkja inn gangstéttir sem gönguleiðir, tengja þær yfir götu á eðlilegum stöðum (helst að skoða hvort fláar séu til staðar - margir með kerrur eða vagna eða göngugrindur).

Setja bicycle=yes á þá staði sem eðlilegt má teljast að hjólað sé, það þarf ekki hver einasta gangstétt að vera þannig (eins og ég gerði fyrst sjálfur og gerði OpenCycleMap að martröð og tryggir ekki bestu hjólaleið).

Offors mitt í því að taka bicycle=yes af sem flestum stöðum var kannski overkill en kannski ekki, það auðveldar okkur að merkja inn alvöru göngustíga (sem ættu að vera bicycle=yes) og leyfir okkur að handvelja svo þær gangstéttir sem mynda bestu hjólaleiðirnar.

--Jói

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to