Path er ekki vinsælt heldur

http://www.openstreetmap.org/user/Richard/diary/20333

Ég ætla að kíkja á cycle.travel fólkið og gá hvernig gengur með að smella okkur þar inn og taka þetta áfram.

Þann 29.8.2014 14:08, skrifaði Morten Lange:
Hef ekki náð að taka þátt í umræðunum, en þangað til niðurstaða er fengin ætti kannski að segja frá því á Wiki.openstreetmap.org að umræður séu í gangi á talk-is ?
--
Regards / Kveðja / Hilsen
Morten Lange, Reykjavík

    ------------------------------------------------------------------------
    *From:* Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is>
    *To:* talk-is@openstreetmap.org
    *Sent:* Monday, 25 August 2014, 16:40
    *Subject:* Re: [Talk-is] Tenging stíga og rútun fyrir gangandi og
    hjólandi

    Hæ.

    Skoðaði highway=footway á wiki síðu OSM og þar er ekki gefið að
    það skuli túlka sjálfgefið sem bicycle=no heldur gefið frjálst á
    hvorn veginn það er túlkað af hálfu algrímanna. Ef við tökum
    bicycle=yes af yrði það líklega mismunandi milli algrímanna hvort
    þeir beini hjólafólki eftir stígum eða götum.

    Einhverjar umræður hafa verið í gangi á aðalpóstlista OSM um
    sjálfgefin gildi á tilteknum svæðum þar sem hægt væri að setja inn
    sjálfgefnar stillingar í samræmi við lög og reglur sem gilda á
    hverju svæði, svo ekki þurfi að merkja allt innan svæðisins með
    einhverju sem gildir alls staðar. Veit samt ekki hvort eða hvenær
    slíkar sjálfgefnar skilgreiningar yrðu innleiddar.

    Persónulega hefði ég talið það eðlileg virkni fyrir hjólaumferð í
    rútunaralgrímum að beina fólki á stíga ef það er styttri og/eða
    öruggari leið, sérstaklega ef um er að ræða óvant hjólafólk.
    Fólkið sem telur sig ráða við að hjóla á götum getur auðvitað
    hunsað tillögu algrímanna um að nota stíga ef aðstæður leyfa, eða
    fólkið sem semur algrímana geri ráð fyrir þessu og lagi algrímana
    að þessum veruleika. Ef ég ætlaði að fara stystu leiðina fyrir
    hjól myndi ég eðlilega vilja fá leiðarlýsingu þar sem ég get
    notfært mér alla stíga sem ég má hjóla á.

    Ef bicycle=yes yrði tekið af í Fellahverfinu, rútunaralgrímurinn
    myndi túlka skortinn sem bicycle=no og ég myndi óska eftir
    hjólaleið frá Völvufelli 11 og til Drafnarfells 2, þá myndi hann
    mæla með því að ég myndi hjóla eftir götunni út Völvufellið og
    síðan hringinn í kringum húsin meðfram Suðurfelli og Norðurfelli
    áður en ég kemst á Drafnarfell. Með bicycle=yes myndi algrímurinn
    mæla með því að ég myndi hjóla stuttan stíg norður að Drafnarfelli 2.
    Með bicycle=yes:
    
http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.824661,64.1007793&end=-21.8247791,64.1012104&pref=Bicycle&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false
    Án bicycle=yes:
    
http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.824661,64.1007793&end=-21.8247791,64.1012104&pref=Fastest&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false

    Síðan eru auðvitað líklegri tilvik eins og ef einhver biður um
    hjólaleið milli Seljahverfisins í Reykjavík og yfir í Lindahverfið
    eða Salahverfið í Kópavogi (ekki endilega milli heimilisfanga sem
    eru rétt hjá hvort öðru). Fyrri áhyggjurnar í þessari umræðu voru
    einnig að OpenCycleMap birti of mikið af bláum leiðum sem eiga að
    vera sérstakar hjólaleiðir. En ef merkja á stíga með bicycle=yes á
    stígum sem eru ekki meðfram götum mun birtast hellingur af bláum
    blettum á því korti ef reynt er að halda í rútunina. Ef úrval
    slíkra stíga er of strangt mun fólk undrast af hverju tilteknir
    stígar á kortinu urðu ekki fyrir valinu þegar þeir eru augljóslega
    hentugri en sú leið sem var valin. Þetta er nokkurn veginn það sem
    fólk er að lenda í þegar stígar eru ekki tengdir almennilega.

    Tæknilega séð eigum við að merkja stíga sem eru fyrir ótilgreindar
    tegundir óvélknúinnar umferðar sem highway=path. Gætum íhugað að
    breyta highway=footway í highway=path nema á þeim stöðum þar sem
    skilgreint er sérstaklega að stígurinn sé fyrir ákveðna umferð
    eingöngu (eins og sérstaka hjólastíga). Þá getum við sleppt
    bicycle=yes tagginu þar sem það er sjálfgefið og liturinn fyrir
    það er ekki æpandi á OpenCycleMap.

    Varðandi úrlausn myndi ég ekki mæla með því að stígar meðfram
    götum yrðu teknir út enda myndi það brjóta nokkuð mikið í bága við
    ‚don't tag for the renderer‘ regluna (sem á einnig við um
    rútanir). Það ferli að velja sérstaklega hvaða leiðir eru
    viðeigandi og merkja þær (þar með talið koma sér saman um almenn
    viðmið og viðhalda merkingum) getur alveg eins verið jafn
    fyrirhafnarmikið og setja inn þveranir þar sem á við. Auk þess
    væri það nokkuð selective tagging að fara að stunda það að velja
    leiðir með þessum hætti og myndi vera langt frá því að leysa úr
    rútunarvandanum fyrir gangandi vegfarendur (jafnvel með notkun á
    sidewalk tagginu). Ef gögnin eru rétt og rútunaralgrímar eru að
    mæla með einhverju röngu, þá á að leysa vandamálið í algrímunum
    sjálfum en ekki með því að rengja rétt gögn. Sama gildir ef
    eitthvað kemur ljótt út á korti. OpenStreetMap verkefnið gengur
    aðallega út á gögnin en ekki hvernig þau eru túlkuð nema af afar
    litlu leiti.

    Mín tillaga undir þessum kringumstæðum er að vinna í að bæta
    þveranir og taka umræðuna varðandi að breyta highway=footway í
    highway=path. Það tekur auðvitað einhverja vinnu í upphafi að
    framkvæma þetta en eitthvað sem mun þurfa að gera að endingu.

    Með kveðju,
    Svavar Kjarrval



    On 21/08/14 10:10, Arni Davidsson wrote:
    Hæ

    Já Bristol á Englandi.

    Mér sýnist þetta snúast um magn af gögnum. Það eru lítil gögn í
    Bristol og þeir fáu stígar sem eru teiknaðir eru einfaldlega
    tengdir við götu (og gert ráð fyrir gangstéttum við þær) og svo
    er rútað eftir götunni fyrir gangandi.

    Stígurinn í þessu tilviki er ekki með bicycle=yes og því ættu
    hjól að fara eftir götu skv. þessu:

    Rútað fyrir hjól
    
http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.583334,51.466187&end=-2.583152,51.46466&pref=Bicycle&lang=de&noMotorways=false&noTollways=false

    Rútað fyrir gangandi
    
http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.583334,51.466187&end=-2.583152,51.46466&pref=Pedestrian&lang=en&noMotorways=false&noTollways=false

    Hér er svo annar staður með stíg merktan bicycle=yes og rútað
    fyrir gangandi:
    
http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.5838582,51.4671268&end=-2.5810258,51.4675613&pref=Pedestrian&lang=en&noMotorways=false&noTollways=false

    og hjólandi:
    
http://openrouteservice.org/index.php?start=-2.5838582,51.4671268&end=-2.5810258,51.4675613&pref=Bicycle&lang=en&noMotorways=false&noTollways=false

    Mér sýnist að við þurfum líklega að:

    1. Fyrir gangandi. Annaðhvort að nota merktar gangstéttir fyrir
    gangandi og tengja þá allar gangstéttir yfir götur _*eða*_ að
    eyða út gangstéttum og rúta eftir götum (þar sem eru
    gangstéttir). (Í því tilviki væri hægt að halda inni upplýsingum
    með því að nota sidewalk=both/left/right/none sem tag við highway.)

    2. Fyrir gangandi. Láta þá stíga sem eru nauðsynlegir og eru ekki
    við götu halda sér og tengjast við götu (ef við eyðum
    gangstéttum) eða við gangstéttir (ef við höldum gangstéttum og
    tengjum þær allar yfir götur).

    3. Fyrir hjólandi. Rúta eftir götum að jafnaði en setja
    bicycle=yes við þá stíga og gangstéttir (ef við höldum þeim) sem
    eru nauðsynlegir og eðlilegir sem tengingar fyrir reiðhjól.
    Sérstakir hjólastígar eru eðlilegur hluti af leiðum.

    Hvað finnst ykkur vera eðlilegasta og einfaldasta leiðin? Eyða
    gangstéttum eða tengja þær yfir götur?

    kveðja
    Árni Davíðsson








    2014-08-21 0:16 GMT+00:00 Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is
    <mailto:sva...@kjarrval.is>>:

        Hæ.

        Bristol á Englandi?

        En annars fæ ég þetta til að virka á openrouteservice.org
        <http://openrouteservice.org/> í Reykjavík fyrir fótgangandi
        og hjólandi. Hér er hjóladæmi í Breiðholtinu þar sem búið var
        að tengja þveranir á sínum tíma:
        
http://openrouteservice.org/index.php?start=-21.8173057,64.1006776&end=-21.8241862,64.1000975&pref=Bicycle&lang=en&noMotorways=false&noTollways=false

        Leiðin gæti þó orðið styttri með meiri gögnum á svæðinu en
        hér er greinilegt að beintengdu stígarnir eru nýttir eftir
        því sem kostur er.

        Með kveðju,
        Svavar Kjarrval


        On 16/08/14 01:06, arni...@gmail.com
        <mailto:arni...@gmail.com> wrote:
        Það sem mér finnst athyglisvert með gögnin frá t.d. Bristol
        er að routing virkar þrátt fyrir að hvorki gangstéttir né
        þveranir séu skráðar. Hversvegna virkar það þar en ekki hjá
        okkur? Erum við að gera málið alltof flókið? Er hægt að
        skýra þennan mun?

        Kveðja
        Árni Davíðsson

        On 15.8.2014, at 22:11, Svavar Kjarrval <sva...@kjarrval.is
        <mailto:sva...@kjarrval.is>> wrote:

        Hæ.

        Gallinn við stígagögnin frá Reykjavíkurborg er að þau eru
        frekar teiknuð upp á útlitið en routing. Fyrir okkur var
        þetta auðvitað ekki ákjósanlegasta staðan. Við fengum hins
        vegar nokkuð tæmandi safn yfir stíga, jafnvel stíga sem við
        myndum líklegast ekki fá af loftmyndunum einum saman. Hvað
        varðar routing gæti þetta verið bjarnargreiði en nokkuð
        góður greiði þegar kemur að því að vita hvar stígar eru og
        hvar þeir liggja. Með Laugaveginn tek ég þetta algerlega á
        mig, sérstaklega þar sem ég á heima þar rétt hjá og hefði
        auðvitað átt að hafa klárað þetta þar fyrir löngu.

        Okkar vantar smá átak til þess að skrá betur gangbrautir og
        aðrar þveranir yfir götur. Tók sjálfur einhver þannig svæði
        á sínum tíma en hef því miður fært áhersluna annað innan
        OSM. Hef samt tekið nokkuð margar GPS taggaðar ljósmyndir
        af slíkum þverunum í einhverjum gönguferðanna sem ég hef
        farið. Ef einhver hefur áhuga á að skrá þetta í massavís,
        þá get ég tekið þær myndir saman og sent viðkomandi. Margar
        þverananna sem myndir eru af gætu þó verið augljósar út frá
        loftmyndum.

        Hvaða svæði finnst ykkur að ættu að vera í forgangi þegar
        bæta á við þessum tengingum?

        Með kveðju,
        Svavar Kjarrval

        On 11/08/14 16:26, Arni Davidsson wrote:
        Sæl

        Á að skrifa hér á ensku frekar en íslensku? Ég byrja
        allavega á íslensku.

        Það hefur áður verið minnst á að leiðavalið (routing)
        fyrir gangandi og hjólandi sé ekki að ganga sem skyldi í
        Open street map. Ástæðan er að hluta til innfærsla á
        gögnum yfir stíga frá sveitarfélögunum því í þeim gögnum
        virðast stígar oft ekki tengdir yfir götur né við götu.
        Þannig virkar leiðavalið ekki vegna þess að stígar eru
        einfaldlega ekki tengdir. Það er fyrirsjáanlegt að það er
        talsverð vinna að tengja stígana. Sjá t.d. það sem gerist
        hér að neðan í ridethecity og hvernig gögnin líta út í
        openstreetmap og í borgarvefsjá:



        http://www.openstreetmap.org/#map=17/64.14255/-21.90141&layers=C
        
http://borgarvefsja.reykjavik.is/borgarvefsja/?_ga=1.45753188.1365589408.1360679825

        Það er spurning hvort stígagögn sveitarfélaganna hafi ekki
        verið hálfgerður bjarnargreiði frá þessum sjónarhóli en
        spurningin er hvernig á að laga þetta? Á bara að hella sér
        í að tengja stíga við götur og yfir götur þar sem um
        þverun er að ræða. Eins og þið sjáið í Hátúni er fullt af
        þverunum og meira að segja þveranir á gangbrautarljósum á
        Laugavegi koma ekki fram í Openstreetmap.

        Einhverjar snjalla hugmyndir?

        kveðja
        Árni Davíðsson



-- Árni Davíðsson
        arni...@gmail.com <mailto:arni...@gmail.com>


        _______________________________________________
        Talk-is mailing list
        Talk-is@openstreetmap.org  <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
        https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

        _______________________________________________
        Talk-is mailing list
        Talk-is@openstreetmap.org <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
        https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


        _______________________________________________
        Talk-is mailing list
        Talk-is@openstreetmap.org  <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
        https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


        _______________________________________________
        Talk-is mailing list
        Talk-is@openstreetmap.org <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
        https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is




-- Árni Davíðsson
    arni...@gmail.com <mailto:arni...@gmail.com>


    _______________________________________________
    Talk-is mailing list
    Talk-is@openstreetmap.org  <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
    https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is


    _______________________________________________
    Talk-is mailing list
    Talk-is@openstreetmap.org <mailto:Talk-is@openstreetmap.org>
    https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is




_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

_______________________________________________
Talk-is mailing list
Talk-is@openstreetmap.org
https://lists.openstreetmap.org/listinfo/talk-is

Reply via email to